Menning

Skrifborð Jóhanns hlaut verðlaun í Mílanó

Jóhann fékk drumbana hjá Faxaflóahöfnum og síðan þurrkaði hann og heflaði um fjórðung þeirra með endurvinnslu í huga.
Jóhann fékk drumbana hjá Faxaflóahöfnum og síðan þurrkaði hann og heflaði um fjórðung þeirra með endurvinnslu í huga. Mynd/Aasa Charlotta Ingerardóttir
Í desember 2013 voru hægindastóllinn Andagjöf og skrifborðið EitthvaðYfir eftir Jóhann Sigmarsson valin á The A'Design Award & Competition, alþjóðlega hönnunarkeppni í Mílanó. Í síðustu viku var svo tilkynnt að hægindastóllinn hefði fengið viðurkenninguna „Runner-up for A'Design Award“ og að skrifborðið væri „A'Design Winner“ í flokki húsgagna. Í keppninni var 5.641 þátttakandi valinn úr 12.523 umsóknum frá 208 löndum.



Húsgögnin voru unnin úr yfir hundrað ára gömlum viði úr Reykjavíkurhöfn, en það atvikaðist þannig að Jóhann sá í sjónvarpsfréttum að Faxaflóahafnir sf. voru að hreinsa á brott ónýta bryggjudrumba vegna breytinga í Reykjavíkurhöfn. Jóhann fékk drumbana og síðan þurrkaði hann og heflaði um fjórðung þeirra með endurvinnslu í huga.



Húsgögn Jóhanns eru hluti af Miðbaugs-minjaverkefninu, sem er alþjóðlegt farandverkefni listamanna sem skapa listaverk úr endurnýttu efni úr sögulegum heimsminjum. Verkin verða sýnd á alþjóðlegum listsýningum og seld á uppboði í lok hverrar sýningar. Hluti af andvirði hvers verks mun renna í sjóð til að styrkja góð málefni á heimsvísu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.