Menning

Grýla og Leppalúði heimsækja Þjóðminjasafnið

Bjarki Ármannsson skrifar
Foreldrar jólasveinanna heimsækja safnið alltaf á aðventunni.
Foreldrar jólasveinanna heimsækja safnið alltaf á aðventunni. Mynd/Þjóðminjasafnið
Þau Grýla og Leppalúði munu á morgun skemmta gestum Þjóðminjasafnsins ásamt söngkonunni Jóhönnu Guðrúnu. Löng hefð er fyrir því að foreldrar jólasveinanna heimsæki safnið á aðventunni og fái til sín góðan gest.

Í tilkynningu frá safninu er skemmtunin sögð nokkurs konar upphitun fyrir heimsókn sjálfra jólasveinanna sem mæta í þjóðminjasafnið hver af öðrum frá 12. desember til aðfangadags. Aðgangur er ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×