Menning

Kristín Helga verður formaður Rithöfundasambandsins

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
VÍSIR/STEFÁN
Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur verður formaður Rithöfundarsambandsins. Hún var kjörin til formennsku á aðalfundi sambandsins í gær. Hún tekur við af Kristínu Steindóttur sem gengt hefur embættinu í fjögur ár.

Hallgrímur Helgason rithöfundur verður meðstjórnandi. Aðrir í stjórn verða Jón Kalman, Sölvi Björn Sigurðsson, Úlfhildur Dagsdóttir. Varamenn verða Gauti Kristmannsson og Oddný Eir Ævarsdóttir. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.