Lífið

Cara Delevingne í kaldri sturtu

Cara Delevingne gerði sér lítið fyrir og lét hella yfir sig ísköldu vatni.
Cara Delevingne gerði sér lítið fyrir og lét hella yfir sig ísköldu vatni. vísir/getty
Ofurfyrirsætan Cara Delevingne hefur sett sig í flokk frægra einstaklinga sem tekið hafa svokallaðri Ísfötu-áskorun eða The Ice Bucket Challenge sem gengur út á að hella yfir sig fötu af ísköldu vatni, taka það upp á myndband og birta á samfélagsmiðlum til þess að vekja athygli á ALS samtökunum.

Ofurfyrirsætan gerir sér lítið fyrir og fær til liðs við sig tvær vinkonur sínar til þess að hella vatninu á sig.

Eftir gusuna bregður hún á leik og faðmar eina vinkonuna sem tekur gríninu þó bara vel.

Myndbandið birti Delevingne á Instagram-síðu sinni og má sjá það hér að neðan.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.