Tíska og hönnun

Í brúðarkjól og strigaskóm

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Fyrirsætan Cara Delevingne sýndi brúðartískuna frá Chanel Haute Couture í París í dag.

Cara klæddist unaðslegum kjólum og var í hvítum strigaskóm við þá.

Hún gekk tískupallana með tískugoðinu Karl Lagerfeld og fimm ára gömlum guðsyni hans.

Chanel er mjög hrifið af Cöru og gekk hún einnig tískupallana fyrir merkið þegar það sýndi vor- og sumarlínu sína.

Brúðargyðja.
Góð þrenna.
Með myndarlegt fjaðraskraut.
Falleg sjón.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×