Isavia ohf. og Nærræni fjárfestingabankinn (NIB) undirrituðu í gær lánasamning að upphæð 32 milljónum evra, sem samsvarar um fimm milljónum króna. Lánið er vegna framkvæmda og endurbóta á Keflavíkurflugvelli.
Vinna er nú hafin við fimm þúsund fermetra stækkun flugstöðvarinnar og er áætlað að framkvæma í afkastaaukandi verkefnum á flugvellinum fyrir um 15 milljarða króna á árunum 2014 – 2016.
„Miklar fjárfestingar eru nauðsynlegar á Keflavíkurflugvelli til þess að mæta síauknum kröfum um aukna afkastagetu og þjónustu. Áætlað er að gerð aðalskipulags og þróunaráætlunar fyrir flugvöllinn ljúki á næsta ári og þá skýrist betur hvaða leið verður farin til þess að mæta langtímaþörfum flugvallarins og notenda hans,“ segir Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Í tilkynningunni segir að lánið sé veitt án sérstakra trygginga eða ábyrgðar frá eiganda og sé til marks um tiltrú bankans á félaginu og rekstri þess.
„Við fögnum samstarfinu við Norræna fjárfestingarbankann og teljum það fyrirtækinu til framdráttar að vera með svo öflugan bakhjarl sem lánveitanda.“
Norræni fjárfestingarbankinn er alþjóðleg bankastofnun í eigu átta norrænna ríkja: Danmerkur, Finnlands, Íslands, Eistlands, Lettlands, Litháens, Noregs og Svíþjóðar. Bankinn annast fjármögnum verkefna á vegum opinberra aðila og einkaaðila innan og utan norrænu landanna og nýtur hæsta lánshæfismats hjá helstu matsfyrirtækjum heims, Standard & Poor’s og Moody’s.
„Farþegum á Keflavíkurflugvelli hefur fjölgað jafnt og þétt. Fyrirhugaðar fjárfestingar sem Norræni fjárfestingarbankinn fjármagnar munu að hluta koma til móts við aukna eftirspurn eftir þjónustu og auka möguleika á samkeppni flugfélaga í flugi til og frá Íslandi,“ segir Henrik Normann bankastjóri.
