Lífið

Klipptur út úr Scandal vegna játningar um barnaníð

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Leikarinn Stephen Collins hefur verið klipptur út úr Scandal-þætti sem sýndur verður á næstunni vestan hafs. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá sjónvarpsstöðinni ABC til tímaritsins Us Weekly.

„Við staðfestum að við setjum ekkert efni í loftið með Stephen Collins,“ stendur í yfirlýsingunni en fréttasíðan TMZ birti upptöku í vikunni þar sem Stephen heyrist játa að hafa misnotað stúlkur undir lögaldri.

Stephen hefur ekki tjáð sig um játninguna opinberlega en hann sætir nú lögreglurannsókn. 

Í kjölfar játningarinnar var Stephen einnig rekinn úr kvikmyndinni Ted 2 og hætt var að endursýna sjónvarpsþættina 7th Heaven þar sem hann lék eitt af aðalhlutverkunum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.