Lífið

Alba ekki alltaf ánægð og örugg

Jessica Alba kann vel við sig í móðurhlutverkinu.
Jessica Alba kann vel við sig í móðurhlutverkinu. Vísir/Getty
Leikkonan Jessica Alba, sem löngum hefur verið þekkt fyrir mikla fegurð og þokka, tjáði sig í viðtali í The Meredith Vieira Show, um að hún hafi verið mjög óörugg með sjálfa sig þegar hún var yngri.

Hún var stödd í New York á dögunum og náði að breyta þeim göngustígum sem hún gekk á í rauðan dregil, svo vel leit hún út. Þó svo að Alba, sem á tvö börn líti út eins og hún hafi alltaf verið ekkert nema öryggið uppmálað varðandi sjálfan sig, er sú ekki raunin.

Hún segir að meginástæðan fyrir óöryggi sínu hafi verið að hún hafi ekki farið í framhaldsskóla og þar af leiðandi hafi henni liðið eins og hún væri ekki nógu gáfuð. Hún talaði um hvernig menntun hefur áhrif á sjálfsmynd fólks.

Hin 33 ára gamla Alba segist þó að líða betur í dag og að börnin sín spili þar stórt hlutverk. Hún kann vel við sig í móðurhlutverkinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×