Þúsundir hafa fylgst með honum og hafa myndast líflegar umræður á Twitter um gjörninginn. Guðmundur Oddur, betur þekktur sem Goddur, fór og fylgdist með Almari í gær og segir skemmtilegt til þess að vita að kassinn sem Almar dvelur í var lengi á Hlemmi á vegum listamannsins Erlings Klingenberg.
„Ég hef bara bráð gaman af þessu,“ segir Goddur en Almar hefur sett sér það markmið að tala ekkert á meðan gjörningnum stendur. Hann fór inn í glerkassann allslaus en margir hafa fært honum muni og mat frá því gjörningurinn hófst klukkan níu í gærmorgun.
Goddur segist þó hafa veitt rýminu sem er við hliðina á kassanum nokkra athygli. Um er að ræða einskonar kaffistofu en þar sátu um tuttugu til þrjátíu nemendur sem fylgdust með Almari, en þó ekki með berum augum heldur í gegnum netið.
„Þau höfðu engan áhuga á að horfa á hann „live“ heldur snerist þetta allt saman um að horfa á hann á netinu. Það var þetta sem mér þótti svo athyglisvert,“ segir Goddur. Hann segir nemendurna einungis hafa rætt hvernig þeir ættu að pönkast í Almari.
„Ætluðu að setja klámblöð í boxið til hans og vita hvað gerðist og voru bara að fylgjast með „kommentum“ og Twitter og því sem var í gangi á netinu um þetta. Það segir okkur svolítið mikið um ungt fólk, hvernig þetta „stönt“ er gert fyrir netið.“
Hann segir í sjálfu sér ekkert stórkostlegt við þennan gjörning. „Þetta er ákveðinn ungæðisháttur, svona „attitude“ og prufa, vita hvað gerist. Það er út af fyrir sig athyglisvert og ég hef bara bráð gaman af þessu ef eitthvað er,“ segir Goddur en nefnir að tíminn muni svo leiða í ljós hvort þessi gjörningur sé eitthvað sem skipti máli.