Felix Bergsson saknar leðurhommaklúbbsins Jakob Bjarnar skrifar 3. júlí 2015 13:25 Felix Bergsson og maður hans Baldur Þórhallsson. Felix segir skorta stað fyrir samkynhneigða karlmenn á Íslandi. visir/stefán
Ítarleg umfjöllun er um skemmtanalífið í Reykjavík, þá með augum homma, í fjölmiðlinum gayiceland.is. Hún er undir yfirskriftinni „There is no true gay scene in Iceland“ og það er blaðamaðurinn Friðrika Benónýs sem tekur saman.MSC klúbbsins sárt saknað Umfjöllunin er athyglisverð, fjallar um menningu sem ekki hefur farið hátt á Íslandi og er fyrirsögnin lýsandi fyrir efni greinarinnar: Af hverju er ekkert almennilegt skemmtanalíf sem ætlað er hommum sérstaklega? Friðrika bendir á að á Facebook hafi að undanförnu mátt lesa minningar fullar trega og eftirsjár um MSC men unly club, leðurhommaklúbb sem rekinn var á árum áður við Ingólfsstræti. Og hún ræðir við einn þeirra sem sótti staðinn reglulega, Felix Bergsson sjónvarpsmann og leikara, sem segir staðinn þann vera frábæran. Og hann eigi þaðan góðar minningar.Ein þeirra mynda sem birtist með umfjöllun gayicleand.is og má heita lýsandi fyrir hvernig staður hinn fornfrægi MSC staður var.„Ég fór tók að sækja staðinn meðan hann var lítill og staðsettur gegnt Íslensku óperunni. Seinna flutti hann í kjallara við Laugaveginn, í stærra rými og vel skreytt. Þar var eingöngu karlmönnum hleypt inn og þeir sem vildu mæta með kvenfólki fengu ekki inngöngu,“ segir Felix í viðtalinu.Leður og gallabuxur Áhersla var lögð á ímynd karlmennsku, þetta var nánast leikhús. Menn klæddu sig upp áður en þeir sóttu staðinn, í leður og gallabuxur og sýndu sig. „Það var frábært að sitja við barinn og fylgjast með öllu því leikræna sem átti sér stað.“ Friðrika spyr Felix út í orðróm þess efnis að staðurinn hafi verið hættulegur. Felix hlær en segir að það hafi verið partur af ímyndinni. „MSC var ætlað að vera staður sem fólk hvíslaðist á um og óttaðist að sækja. Það var hluti spennunnar. Menn gátu ekki mætt í venjulegum jakkafötum eða diskóklæðnaði; þarna var karlmennskan í hávegum höfð. Kannski var það hluti vandans, ungir menn einfaldlega þorðu ekki að sækja staðinn eftir að hafa heyrt orðróminn?“ Felix telur einsýnt að það vanti sárlega skemmtistað í Reykjavík sem eingöngu er ætlaður samkynhneigðum karlmönnum. Í greininni er svo sagt frá tilurð staðarins fornfræga, MSC standi fyrir Motor Sports Club og til hans hafi verið stofnað 1985 af mönnum sem kynnst höfðu sambærilegum stöðum „hinu leðraða lífi“ í útlöndum.
Mest lesið „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Segir ákvörðun um kæru fyrir nauðgun tekna fyrir andlát flugmanns Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Pilturinn áfram bak við lás og slá Innlent Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Innlent Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Innlent Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Innlent Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Innlent Fleiri fréttir Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Áfrýjaði engu nema ákvörðun um launin og málið fellt niður Þrjú vilja stýra Minjastofnun Varla komist í kast við lögin fyrr en hann flutti kókaín til landsins Bein útsending: Framtíð menntunar á tímum gervigreindar Bein útsending: Sátt um betra menntakerfi Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni Nýr umboðsmaður og SI svara seðlabankastjóra Sjö Rúmenar gefa ekkert uppi um tugmilljóna króna þýfi Vilja að takmarkanir á starfsmannaleigur verði skoðaðar Kristín Benediktsdóttir nýr umboðsmaður Alþingis Tuttugu lyklar í Árbæjarlaug horfnir Inga segir landið að sökkva í sæ vargaldar Jón Gnarr skráður í Viðreisn og ætlar á Alþingi Svandís Svavarsdóttir mætir í Samtalið Pilturinn áfram bak við lás og slá Sjá meira