Zlatan: Ronaldo fékk allt lofið hjá United en Rooney vann alla vinnuna Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. september 2015 14:15 Wayne Rooney og Ronaldo fagna marki í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2008. vísir/getty
Zlatan Ibrahimovic, framherji Paris Saint-Germain, sendir Cristiano Ronaldo sæmilega pillu í viðtali við BBC, en Zlatan og Ronaldo eiga eftir að mætast tvívegis í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Zlatan segir að Cristiano Ronaldo hafi fengið of mikið hrós fyrir frammistöðu sína hjá Manchester United, en í raun hafi það verið Wayne Rooney sem var á bakvið árangur liðsins. Ronaldo og Rooney urðu Englandsmeistarar saman þrjú ár í röð frá 2007-2009 og árið 2008 vann liðið einnig Meistaradeildina. „Þessir frábæru leikmenn eiga sína stundir yfir eitt til þrjú ár, en að geta haldið stöðugleika í fimm til tíu ár eins og Wayne Rooney hefur gert er ekki auðvelt. Það er pressa á hverjum degi að spila fyrir stórt félag,“ segir Zlatan í viðtali við BBC. „Rooney hleypur mikið, berst mikið og fórnar miklu. Þegar hann spilaði með Cristiano Ronaldo vann Rooney alla vinnuna en fékk ekkert lof því Ronaldo skoraði öll mörkin.“ „Ég myndi samt frekar vilja spila með Ronaldo en á móti honum. Ég hef ekki verið svo heppinn að spila með honum en ég nýt þess að sjá hann á vellinum,“ segir Zlatan Ibrahimovic.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira