Menning

Sjaldgæf samsetning hljóðfæra hjá Trio Aurora

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Sigrún, Ögmundur og Selma til í tuskið.
Sigrún, Ögmundur og Selma til í tuskið.
„Við erum nýbúin að stofna þetta tríó og nú er komið að fyrstu tónleikunum,“ segir Selma Guðmundsdóttir píanóleikari um Trio Aurora, sem spilar í Norræna húsinu á morgun, 14. febrúar, klukkan 17. Í tríóinu eru auk hennar þau Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og Ögmundur Jóhannesson gítarleikari.

Hljóðfærasamsetningin, píanó, fiðla og gítar er fremur sjaldgæf að sögn Selmu en hún telur hana gefa spennandi tækifæri, bæði fyrir þau þrjú sem flytjendur og einnig fyrir tónskáld.

„Við fengum hana Þóru Marteinsdóttur til að semja fyrir okkur verk og ætlum að frumflytja það á tónleikunum í Norræna húsinu. Svo spilum við líka tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson, Árna Björnsson, Paganini, Mario Castelnuovo-Tedesco, Beethoven og Piazzola, ýmist sem tríó eða tvö eða tvær saman.“

Trio Aurora hyggur á utanför fljótlega og ekki styttra en til Kína. Þar hefur það bókað tveggja vikna tónleikaferðalag frá 23. mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.