Money: Við ætlum að njóta kvöldsins á Old Trafford Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2015 22:22 Vísir/Getty
Richard Money, knattspyrnustjóri d-deildarliðs Cambridge United, var í skýjunum eftir markalaust jafntefli á móti Manchester United í 4. umferð ensku bikarkeppninnar í kvöld. „Þetta var mikil vinna hjá okkur. Auðvitað er ég rosalega stoltur af mínu liði. Við ætlum að reyna að njóta kvöldsins á Old Trafford. Mínir leikmenn eiga allt hrós skilið sem þeir fá eftir þennan leik," sagði Richard Money. „Þetta er gríðarlega afrek fyrir félagið fjárhagslega. Við náðum að ógna þeim í fyrri hálfleiknum, náðum af þeim boltanum á hættulegum stöðum og föstu leikatriðin okkar voru góð. Við skoruðum næstum því úr einu þeirra," sagði Richard Money. „Seinni hálfleikurinn var síðan eins og hann var. Stórskotaliðið mætti á staðinn en skipulagið í varnarleiknum hélt allan tímann. Markvörðurinn og öll fjögurra manna varnarlínan voru stórkostlegir," sagði Money. „Þetta hafði gríðarlega þýðingu fyrir alla í félaginu. Við erum allir að fara á hótel í bænum og fjölskyldur leikmanna koma með. Það verður matur og eitthvað drukkið líka. Þetta verður gaman," sagði Richard Money.Richard Money, knattspyrnustjóri d-deildarliðs Cambridge United.Vísir/Getty
Enski boltinn Tengdar fréttir D-deildarlið Cambridge United fær annan leik á Old Trafford Manchester United tókst ekki að vinna Cambridge United í fyrsta leiknum í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar í kvöld. Liðin gerðu markalaust jafntefli og því verður annar leikur á Old Trafford eftir tíu daga. 23. janúar 2015 21:51 Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM fyrir fullri höll Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Enski boltinn Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn „Við þurfum annan titil“ Enski boltinn Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Fleiri fréttir „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Arsenal aldrei aflað meira en tapaði samt þremur milljörðum Hafa verið þrettán ár af lygum „Frábær leikur en ég er ekki ánægður með úrslitin“ Jafntefli niðurstaðan í frábærum leik á Villa Park Kostaði Man. United meira en 2500 milljónir að reka Ten Hag og Ashworth Casemiro fer ekki fet Arsenal lét heitasta framherjann í frönsku deildinni fara fyrir „slikk“ Antony með fleiri mörk í febrúar en allt Man. United liðið Segir að Amorim þurfi 2-3 félagaskiptaglugga til að laga hópinn Sektaðir fyrir að öskra á Michael Oliver Arnór laus úr prísund Blackburn Biður til Guðs að Arsenal taki titilinn Pep varð fyrst hræddur um Haaland en er nú vongóður Sjá meira
D-deildarlið Cambridge United fær annan leik á Old Trafford Manchester United tókst ekki að vinna Cambridge United í fyrsta leiknum í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar í kvöld. Liðin gerðu markalaust jafntefli og því verður annar leikur á Old Trafford eftir tíu daga. 23. janúar 2015 21:51