Sumir tala bara í setningum úr myndinni Kjartan Atli Kjartansson skrifar 28. mars 2015 14:00 Sæþór Ásgeirsson í fullum skrúða að mjólka sig upp fyrir keppnina í kvöld. vísir/valli
Aðdáendur kvikmyndarinnar The Big Lebowski koma saman í kvöld í árlegri búninga- og spurningakeppni. Auk þess verður keppt í keilu, íþróttinni sem aðalpersónum myndarinnar þykir svo vænt um. „Þetta verður í níunda sinn sem við höldum þessa hátíð,“ segir Svavar Jakobsson, annar skipuleggjenda hátíðarinnar. Ólafur Jakobsson skipuleggur hátíðina ásamt Svavari. Á myndinni hér til hliðar má sjá sigurvegarann úr búningakeppninni í fyrra, Sæþór Ásgeirsson, í fullum skrúða. Svavar segir að menn taki búningakeppnina misalvarlega. „Sumir leggja ofboðslega mikið í búningana og tjá sig bara með setningum úr myndinni. Maður er svolítið óviss með þá menn,“ segir Svavar og skellir upp úr. Markmið búningakeppninnar er að vera sem líkastur persónum úr myndinni. Hátíðin verður haldin í Keiluhöllinni í Egilshöll og stendur öllum til boða að mæta. „Við bjóðum alla sem hafa aldur til velkomna. Þetta verður skemmtilegt, húsið verður opnað klukkan 20. Þarna verður keppt í keilu og síðan höldum við spurningakeppni. Hápunkturinn og um leið lokahnykkur kvöldsins verður svo verðlaunaafhending fyrir búningakeppnina en hún hefst þarna um hálf tvö.“ Svavar segir að það standi svo gestum til boða að fara á skemmtistaðinn The Big Lebowski bar að lokinni verðlaunaafhendingunni. Þeir sem verði í búningi fái hvítan Rússa án endurgjalds, en drykkurinn kemur mikið við sögu í myndinni. „Þetta er alltaf alveg rosalega skemmtilegt kvöld og við hvetjum aðdáendur myndarinnar til að mæta."
Mest lesið Dásamlegt að koma heim með barnið sem hún þráði svo lengi Lífið Dreymir um að eiga Range Rover Lífið Fékk unnustu í afmælisgjöf Lífið Spilar á flygil innan um risatrukka: „Spurning um líf og dauða fyrir klassíska tónlist“ Lífið Ég hætti að lifa bara af - og fór að LIFA, að vera þátttakandi í lífinu Lífið samstarf Andinn á tökustað í Glæstum vonum: „Spurði fyrst hvort ég gæti verið vondur tvífari“ Lífið Patrik sýnir frá lífinu í Flórída á meðan stormurinn gengur yfir Lífið „Ákvað því að taka þetta í eigin hendur og grenjaði út tíma og pláss“ Lífið Aldís og Kolbeinn keyptu í Kópavogi Lífið Mikil stemning á lokahófi RIFF Lífið Fleiri fréttir Teknó baróninn á Radar á laugardag Fékk unnustu í afmælisgjöf Andinn á tökustað í Glæstum vonum: „Spurði fyrst hvort ég gæti verið vondur tvífari“ Dásamlegt að koma heim með barnið sem hún þráði svo lengi Dreymir um að eiga Range Rover Spilar á flygil innan um risatrukka: „Spurning um líf og dauða fyrir klassíska tónlist“ GameTíví: Óli heimsækir Silent Hill Hlátrarsköll á svartri kómedíu Yung Filly ákærður fyrir nauðgun og líkamsárás Mikil stemning á lokahófi RIFF Patrik í Flórída: „Það er í lagi með mig“ Aldís og Kolbeinn keyptu í Kópavogi Forsetahjónin létu sig ekki vanta og eltu veðrið Fæðing sonar Birgittu Lífar í LXS „Tilveran breyttist að eilífu til hins betra“ „Ákvað því að taka þetta í eigin hendur og grenjaði út tíma og pláss“ Edda Sif og Vilhjálmur eignuðust dreng Patrik sýnir frá lífinu í Flórída á meðan stormurinn gengur yfir „Verst þegar stelpur sem ég þekki ekkert grípa í brjóstin á mér“ Í vandræðum í Bláa lóninu Tólf hundruð fylgdust með tendrun friðarsúlunnar Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Geitin er risin fyrr en nokkru sinni Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Heyrði varla í bónorðinu fyrir látum Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Sjá meira