Menning

Jóladjass í Djúpinu

Magnús Guðmundsson skrifar
Silva og Anna Sóley.
Silva og Anna Sóley.
Söngkonurnar Silva og Anna Sóley hafa haldið saman nokkra tónleika við góðar undirtektir. Í þetta sinn spilar Anna Gréta Sigurðardóttir með þeim á píanó.

Spiluð verða íslensk og erlend jólalög í djassútsetningum ásamt vel völdum standördum. Tónleikarnir verða í Djúpinu í kvöld kl 20.00 og kostar 1.000 kr inn.

Silva og Anna Sóley stunda báðar nám við Tónlistarskóla FÍH en Anna Gréta útskrifaðist frá sama skóla vorið 2014 og stundar nú nám við Kungliga Musikhögskolan í Svíþjóð.

Djúpið er hópasalur á neðri hæð á veitingahúsinu Horninu við Hafnarstræti í Reykjavík. Veitingahúsið Hornið opnaði árið 1979 og er enn í sinni upprunalegu mynd. Hornið er með ítölskum blæ og var fyrsti veitingastaðurinn í þessum stíl á Íslandi. Djúpið var áður þekkt sem djassklúbbur þar sem fram komu ýmsir þekktustu djassleikarar á Íslandi. Djassvakning hélt tónleika, spunameistarar frá Evrópu komu fram og Smekkleysukvöld voru iðulega haldin í Djúpinu svo eitthvað sé nefnt.

Staðurinn var vinsæll tónleikastaður vegna þess að hann þótti minna á stemminguna sem myndaðist á djassklúbbum erlendis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.