Lífið

Vorsýning í Gerðubergi

Þetta tréfólk er meðal þess sem sýnt er í Gerðubergi.
Þetta tréfólk er meðal þess sem sýnt er í Gerðubergi.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnar vorsýningu handverkshópanna í Gerðubergi laugardaginn 2. maí klukkan 14.

Sýnendur skipta tugum og verkin eru af fjölbreyttum toga því í handverkshópunum er stundað bókband, bútasaumur, glervinna, hannyrðir, málun, pappamódelgerð, postulínsmálun, tálgun og útskurður.

Við opnun sýningarinnar verður tekið á móti gestum með harmóníkuleik og Gerðubergskórinn syngur vel valin lög.

Sýningin stendur í fjórar vikur og þar mun markaðsstemning ríkja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×