Lífið

Donatella Versace orðin fyrirsæta

Donatella situr fyrir í nýjum auglýsingum Givenchy.
Donatella situr fyrir í nýjum auglýsingum Givenchy.
Tískudrottningin Donatella Versace situr fyrir í nýjustu auglýsingaherferð tískurisans Givenchy.

Versace, sem er 59 ára og er listrænn stjórnandi samnefnds tískuhúss, situr fyrir í auglýsingunni ásamt yfirhönnuði Givenchy, Riccardo Ticci.

„Það er mér mikill heiður að kynna tískufyrirmyndina mína sem andlit haustlínunnar,“ sagði Ticci á Instagram-síðu sinni, þar sem hann birti eina myndanna.

Herferðin var stíliseruð af fyrrverandi ritstjóra franska Vogue, Carine Roitfeld, og mynduð af tískuljósmyndurunum Mert Alas og Marcus Piggott.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×