Lífið

Ungur Húsvíkingur í tónleikaferð erlendis

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Axel Flóvent Daðason hefur verið líkt við Bon Iver.
Axel Flóvent Daðason hefur verið líkt við Bon Iver. mynd/gunnar ásgeirsson
„Það er allt að gerast núna,“ segir Axel Flóvent Daðason, tæplega tvítugur húsvískur tónlistarmaður. Árið 2013 gaf hann út EP-plötu sem ber nafnið Your Ghost. Eitt laga plötunnar, Snow, hefur fengið yfir 160.000 spilanir á tónlistarveitunni Spotify að undanförnu.

„Ég kann í raun enga skýringu á þessu,“ svarar Axel aðspurður um velgengni lagsins. Það hafi byrjað allt í einu að hækka í desember og hefur hækkað jafnt og þétt síðan þá.





„Ég veit að annað lag af plötunni, Midnight, rataði inn á opinberan indie-folk-lagalista hjá Spotify í Kanada. Það er spurning hvort Snow hafi farið á einhvern svipaðan lista, ég veit það bara ekki.“

Í fyrra kom út smáskífan Beach en á B-hlið hennar má finna ábreiðu Axels á Franc Ocean-laginu Swim Good. Heimasíða Red Bull á Ítalíu, eins undarlegt og það kann að hljóma, segir frá laginu og líkir Axel við bandarísku sveitina Bon Iver. Á Your Ghost má síðan finna lagið Pyramids en Axel segir það ekki tengjast Frank Ocean heldur skólaverkefni sem hann gerði.

Í lok janúar heyrði umboðsmaður í honum og starfa þeir nú saman. Hann kom Axel í samband við bókunarskrifstofur í Þýskalandi, Austurríki og Sviss. Axel er einnig með samning við breskt útgáfufyrirtæki sem heitir Trellis Records og hefur í hyggju að gefa EP-plötuna hans út á Englandi.

„Ég þarf að vísu að taka EP-plötuna upp á nýjan leik þar sem þeim þótti hljómurinn á henni ekki nægilega góður,“ segir hann. Við plötuna bætist lagið Beach og hún mun fá nafnið Forest Fires. Í kjölfar útgáfunnar er stefnt að kynningu á efninu erlendis. Liður í því verkefni er meðal annars tónleikaferð hans um Bretland í páskafríinu sínu.

Axel er búsettur á Akureyri þar sem hann klárar menntaskóla. Hann gerir ráð fyrir að flytjast suður að honum loknum.

„Planið er að drífa sig suður eftir útskrift og fara í þetta af fullum þunga. Flestir tónleikarnir eru fyrir sunnan og það getur verið bras að fá fólk til að spila með sér,“ segir Axel. Í augnablikinu kemur hann oftast fram einn með kassagítar en stundum er fiðluleikari með honum.

„Ég er búinn að semja efni sem fyllir breiðskífu og um leið og Your Ghost er komin út úti þá geri ég ráð fyrir að byrja á upptökum.“ Hann veit ekki ennþá hvenær platan kemur út en það ætti að skýrast áður en langt um líður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×