Ekki fé til að rannsaka undarlega hegðun loðnunnar Svavar Hávarðsson skrifar 11. febrúar 2015 10:10 Fréttablaðið/Óskar „
Þetta er svo óvenjulegt að það er óforsvaranlegt að vera ekki á svæðinu við rannsóknir, og til að fylgjast náið með þessu,“ segir Sveinn Sveinbjörnsson, sérfræðingur Hafrannsóknastofnunar, um þróun loðnuvertíðarinnar, en loðnan heldur sig norður af landinu ólíkt því sem hún hefur löngum gert á þessum tíma árs.Milljarða tugir Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær eru sjómenn ekkert allt of bjartsýnir á að 400.000 tonna loðnukvóti náist allur, en válynd veður og fyrrnefnd hegðun loðnunnar hafa sett strik í reikninginn. Um 70.000 tonn eru komin á land, eða tæp 20% samkvæmt stöðulista Fiskistofu. Hagsmunirnir eru gífurlegir – íslenski kvótinn er metinn á tugi milljarða.Eitt spurningarmerki Sveinn segist í raun ekkert geta sagt til um hvað sé raunverulega í gangi. „Þetta er allt öðruvísi en við erum vanir að sjá og gerbreytt, virðist vera, þetta göngumynstur á loðnunni. Við höfum verið að sjá breytingar síðustu ár, t.d. í fyrra,“ segir Sveinn og bætir við að loðnan sem núna heldur sig fyrir norðan gangi lítið sem ekkert. „Ég veit ekki hvernig þetta endar satt best að segja.“Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafró.vísir/antonJóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir, spurður um hvort ekki sé full ástæða til að halda úti hafrannsóknaskipi til rannsókna fyrir norðan, að það megi til sanns vegar færa. Rannsóknir á loðnunni séu mikilvægar í ljósi þeirra hagsmuna sem eru undir fyrir þjóðarbúið og breytingarnar á hegðun loðnunnar gefi fulla ástæðu til að þær séu rannsakaðar.Sjá einnig:Loðnuvertíðin í voða „Okkar mat á stofninum liggur fyrir, en á hinn bóginn er það rétt að mikilvægt væri að skilja ef um breytt hegðunarmynstur er að ræða. En þetta er víst sá stakkur sem okkur er sniðinn til hafrannsókna og þess utan margt annað sem við vildum rannsaka,“ segir Jóhann.Sveinn Sveinbjörnsson.Sneri loðnan við? Sveinn segir að þegar Hafrannsóknastofnun lauk sínum mælingum í janúar þá hafi loðnan ekki verið komin austur fyrir Kolbeinseyjarhrygg, nema smá hreytur að Langanesi. Þá virðist sem loðnan hafi stoppað á göngu sinni og jafnvel snúið við og gengið vestur aftur. Fréttir frá flotanum sem var við veiðar bentu til þess. Nú sé veiðisvæðið vestan við Kolbeinseyjarhrygginn og Hafrannsóknastofnun hafi engar upplýsingar um gönguna til viðbótar við það sem sést af dreifingu loðnuflotans og fréttum frá skipstjórum hans. „Ég veit ekki hvort við erum að fara inn í svipað ástand og upp úr 1920 þegar Bjarni Sæmundsson lýsir því að loðnugöngur hafi hætt að mestu leyti suður fyrir land um árabil. Hún hafi þá hrygnt fyrir norðan, en á þeim tíma var að hlýna mjög sjórinn við landið og Bjarni taldi að hrygningargöngurnar hefðu ekki komið suður fyrir,“ segir Sveinn. Hvort þetta sé að gerast núna vill Sveinn ekkert segja til um. „Þess vegna er alveg hrikalegt að geta ekkert fylgst með þessu og maður veit ekki hvernig þessi vertíð endar. Svo gæti komið vestanganga, það er alveg hugsanlegt. Loðnan var svo vestarlega, og það má vera að loðnan sem er fyrir norðan gangi til baka og vestur fyrir. Hún gæti líka gengið austur fyrir eða hrygnt fyrir norðan. Við vitum bara ekkert um það.“Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda.Vísir/GVAHaldið í vonina „Þetta er mesta breyting sem menn hafa séð í göngumynstri loðnunnar í seinni tíð, leyfi ég mér að segja,“ segir Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda. „Æ oftar hafa menn orðið varir við að loðnan hrygnir í einhverjum mæli fyrir norðan land, en hvort það sé að verða svona stór breyting núna er ekki gott að segja til um,“ segir Vilhjálmur sem bætir við að staðan sem er uppi kalli fram óvissu hjá útgerðarmönnum og sjómönnum sem séu óöruggir um hvernig best sé að beita sér við veiðarnar. „Við hljótum samt að ná þessu og ef hún fer suður fyrir, sem er ekkert útilokað að hún geri, þá getur það bent til þess að skipin hafi lengri tíma til veiðanna en vanalega,“ segir Vilhjálmur og vísar til þess að hefðbundin loðnuvertíð er iðulega á lokametrunum í kringum miðjan mars. Vilhjálmur segir að haldi loðnan sig fyrir norðan þurfi það ekki að vera alslæmt, en svæðið sé vissulega erfiðara til veiða vegna veðurs og veiðisvæðið gefur sitt á hvað meiri möguleika til að ná loðnunni í grunnnót eða djúpnót. „Hún er ýmist á grunnu vatni eða djúpu, og það er líka sérstakt og erfiðara við að eiga.“
Tengdar fréttir Loðnuvertíðin í voða Loðnan gengur ekki austur fyrir land. Fiskifræðingar vita ekki hvað veldur. Eyjamenn gætu orðið af hundruðum milljóna. 10. febrúar 2015 12:29 Mest lesið Glansmyndir á samfélagsmiðlum valdi mikilli streitu Innlent „Þau eru bara fyrir“ Innlent Fulltrúi Ísraels í Eurovision lifði af hryðjuverkaárásirnar sjöunda október Erlent Segir Grænlendinga yndislega, harðduglega og útsjónarsama Innlent Enn annar gróðureldurinn ógnar Los Angeles Erlent Á bak við hvert vandamál er barn sem líður illa Erlent Hafi ekki verið pínd dögum saman heldur vaknað með áverkana Innlent „Óvandaðir falsfréttamiðlar koma fram við fólk eins og fífl“ Innlent Efnaslys varð í grunnskóla í Reykjanesbæ Innlent Ymur hafi stungið móður sína minnst 22 sinnum Innlent Fleiri fréttir Glansmyndir á samfélagsmiðlum valdi mikilli streitu Segir Grænlendinga yndislega, harðduglega og útsjónarsama „Þau eru bara fyrir“ „Óvandaðir falsfréttamiðlar koma fram við fólk eins og fífl“ Hvammsvirkjun uppfylli ekki skilyrði Óhugnanlegt að hugsa til þess ef allt hefði ekki farið á besta veg Opið málþing Læknadaga: Næring allra, sérstaklega barna - fjárfesting fyrir framtíðina „Erfiðara að komast að rót vandans með þessum krökkum“ Efnaslys varð í grunnskóla í Reykjanesbæ Engar töfralausnir við hegðunarvanda barna Minkurinn dó vegna fuglaflensu Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn bjartsýnir eftir fund dagsins Af þingi í skólamál á Austurlandi Hafi ekki verið pínd dögum saman heldur vaknað með áverkana Efast um niðurstöðu héraðsdóms í Hvammsvirkjunarmáli Björn Þorláks segir sig úr Flokki fólksins Hætta rannsókn á skipverjunum á Hugin „Ég held að það sé full ástæða til að óttast“ Ymur hafi stungið móður sína minnst 22 sinnum Einn af hverjum tuttugu fór í ljós á síðustu tólf mánuðum Bar fyrir sig að barnið hefði byrjað Starfsfólk skólanna óttist kærur eða alvarleg viðbrögð foreldra Fyrrverandi bæjarstjóri Árborgar tekur við í Grímsnes- og Grafningshreppi Kæra lögð fram vegna grænu skemmunnar Einn af hverjum 264 sem tóku ADHD lyf fór í fyrsta geðrofið innan árs Agaleysi í skólum og geðrof tengt ADHD lyfjum Býður upp á nýtt loforð fyrir Flokk fólksins til að svíkja Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“ „Gímaldið“ á borði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála Heitar umræður um lokun flugbrautar Sjá meira
Loðnuvertíðin í voða Loðnan gengur ekki austur fyrir land. Fiskifræðingar vita ekki hvað veldur. Eyjamenn gætu orðið af hundruðum milljóna. 10. febrúar 2015 12:29
Tjáði sig um ofbeldi sonarins fyrir andlátið: „Ætla aldrei að leyfa honum að koma nálægt mér aftur“