Lífið

Björn Ingi og Kolfinna eiga von á barni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup, gaf þau hjón saman í Hallgrímskirkju í dag.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup, gaf þau hjón saman í Hallgrímskirkju í dag. Vísir/Anton Brink
Björn Ingi Hrafnsson og Kolfinna Von Arnarsdóttir eiga von á barni. Björn Ingi tilkynnti þetta sjálfur í brúðkaupsveislu þeirra hjóna nú í kvöld. Fyrir á Björn Ingi tvö börn og Kolfinna eitt.

Þau Björn Ingi og Kolfinna kynntust í lok síðasta árs. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup, gaf þau saman í Hallgrímskirkju í dag.

Sjá einnig: Björn Ingi gifti sig í Hallgrímskirkju – Myndir

Páll Óskar söng í athöfninni sjálfri og Stebbi og Eyfi tóku lagið í veislunni. Þá sendi Sigmundur Davíð, sem nú er staddur erlendis, ræðu sem lesin var upp í veislunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×