Lífið

Stórfenglegt myndband af eldingu

Samúel Karl Ólason skrifar
Youtube notandinn Clint Blevins birti nýverið myndband af eldingu sem sló niður á strönd fyrir utan heimili hans í Flórída í Bandaríkjunum. Hann hægði verulega á myndbandinu svo auðvelt er að gera sér í hugarlund hve kraftmiklar eldingar séu í raun.

Samkvæmt NBC slasaðist ellefu ára drengur alvarlega þegar hann varð fyrir eldingu á sömu strönd í vikunni. Hann var við veiðar með föður sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×