Lífið

Björn Ingi gifti sig í Hallgrímskirkju - Myndir

Samúel Karl Ólason skrifar
Björn Ingi Hrafnsson, stjórnarformaður DV og Pressunnar, gekk að eiga unnustu sína, Kolfinnu Von Arnarsdóttur almannatengil, í Hallgrímskirkju í dag. Agnes M. Sigurðardóttir biskup gaf þau saman við hátíðlega athöfn.

Björn Ingi gekk tárvotur úr kirkjunni, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem ljósmyndari Fréttablaðsins Aton Brink tók í dag. Margt var um manninn í brúðkaupinu og fengu hjónin dýrindisveður fyrir athöfnina.

Björn Ingi Hrafnsson og Kolfinna Von Arnarsdóttir.Vísir/Anton Brink





Fleiri fréttir

Sjá meira


×