Menning

Frumsýndi í gær og fermist á morgun

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
?Ég byrjaði að æfa 1. júní 2014 og var að allt sumarið í fyrra svo ég er búinn að æfa í næstum ár,? segir Baldvin.
?Ég byrjaði að æfa 1. júní 2014 og var að allt sumarið í fyrra svo ég er búinn að æfa í næstum ár,? segir Baldvin. Vísir Ernir
Baldvin Alan var einn af þremur valinn í hlutverk Billy Elliot í Borgarleikhúsinu en varð fyrir því óláni að togna í lærvöðva skömmu fyrir frumsýningu og sýndi í fyrsta skipti í gær. Hann segist vera orðinn stálsleginn.

?Ég er orðinn mjög fínn, þetta er allt búið að batna.?

Varstu að æfa á sviðinu þegar þú tognaðir? Nei, ég var bara að hita upp fyrir fimleika og fann verk í lærinu. Ég talaði við þjálfarann og hann sagði að þetta gæti verið tognun, sem það reyndist vera. Við höldum að þetta hafi verið eitthvað sem var búið að byggjast upp.

Það hefur verið dálítið álag á þér. Hvenær byrjaðir þú að æfa fyrir Billy Elliot? Ég byrjaði 1. júní 2014 og var að allt sumarið í fyrra svo ég hef verið að æfa í næstum ár.

Varstu ekki svekktur þegar þú varðst var við meiðslin? Jú, dálítið. Sérstaklega að mega ekki dansa.

Ertu í dansskóla? Ég var í Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar í Kópavogi og æfði samkvæmisdans áður en ég byrjaði í þessu verkefni.

Býrðu í Kópvogi? Nei, nei. Ég á heima í Hveragerði og var bara keyrður á dansæfingar þrisvar til fjórum sinnum í viku. Svo það voru ekkert mikil viðbrigði að þurfa að keyra í bæinn þegar ég byrjaði í Billy.

Hvenær gastu svo tekið upp þráðinn aftur í leikhúsinu? Bara rétt fyrir páska. Við vorum alltaf þrír að æfa saman fyrir titilhlutverkið og hinir tveir hafa sinnt því á sýningum fram að þessu. En mín frumsýning var í gær. Svo er ég að fermast á morgun í Hveragerðiskirkju.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.