Lífið

Kann alla texta Rihönnu

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Matt LeBlanc elskar að eyða tíma með ellefu ára dóttur sinni sem er mikill Rihönnu aðdáandi.
Matt LeBlanc elskar að eyða tíma með ellefu ára dóttur sinni sem er mikill Rihönnu aðdáandi. Vísir/Getty
Leikarinn Matt LeBlanc sem er best þekktur fyrir hlutverk sitt sem Joey í Friends kann textana við öll lög söngkonunnar Rihönnu.

Það er þó ekki vegna þess að LeBlanc sé sjálfur svo mikill aðdáandi söngkonunnar heldur er textakunnátta hans tilkomin vegna þess að ellefu ára dóttir hans, Marina, er gríðar mikill aðdáandi söngkonunnar.

LeBlanc sagði í viðtali á dögunum að hann elskaði að eyða tíma með dóttur sinni, sem hann á með fyrrverandi eiginkonu sinni, Melissu McKnight, og auk þess að hlusta á Rihönnu þá elduðu þau saman beikon og egg og ræddu draumfarir dótturinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×