Lífið

Er þetta fugl? Er þetta flugvél? Nei, þetta er Daníel

Birgir Olgeirsson skrifar
Félagarnir Sigurjón og Daníel eiga það til að bregða á leik.
Félagarnir Sigurjón og Daníel eiga það til að bregða á leik.
„Við höfum bara gaman að því að láta fólk hlæja,“ segir Sigurjón Veigar Þórðarson um uppátæki sitt og Daníels Árnasonar í Grindavík í gær. Í myndbandinu sést Sigurjón á ferð í Grindavík þegar hann kemur auga á undarlega veru við hlið bílsins. Sigurjón veltir því fyrir sér hvort þetta sé hinn eini sanni Superman en það er fátt um svör frá Daníel sem segist vera á leið til höfuðborgarinnar til að hjálpa Reykvíkingum.

„Þetta kemur upp þegar manni leiðist,“ segir Sigurjón Veigar um myndbandið en félagarnir hafa áður ratað á síður vefmiðla fyrir myndbönd sín en í nóvember síðastliðnum birtist myndband á Vísi þar sem Daníel sást skokka í óveðri í Grindavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×