Menning

Stilla saman strengi

gunnþóra gunnarsdóttir skrifar
Þær Elísabet og Laufey hafa spilað saman vítt og breitt um Ísland og í Hollandi, Þýskalandi og á Ítalíu.
Þær Elísabet og Laufey hafa spilað saman vítt og breitt um Ísland og í Hollandi, Þýskalandi og á Ítalíu.
4 plús 47 á 15.15 virðist kannski vera stærðfræðiformúla en er það ekki. Um er að ræða fjóra fiðlustrengi ásamt fjörutíu og sjö hörpustrengjum sem Laufey Sigurðardóttir og Elísabet Waage leika á sunnudaginn 1. mars í tónleikaseríunni 15.15 í Norræna húsinu.

Efnisskráin er fjölbreytt og hefst á syrpu úr Töfraflautu Mozarts sem tónskáldið Louis Spohr setti á blað. Hann var sjálfur fiðluleikari og samdi og spilaði dúó með hörpuleikaranum Dorette sem var eiginkona hans. Síðan munu hljóma nokkur lög eftir Ravel, Fauré og Tsjaíkovskí.

Þá er komið að frumflutningi á nýrri tónsmíð eftir Báru Grímsdóttur. Hún kennir kaflana fjóra við árstíðirnar og byggir á íslenskum tónarfi. Þær stöllur enda svo dagskrána á rúmenskum þjóðlögum eftir Bartók.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.