Lífið

Hversu lengi á gestur veigar hjá gestgjafa?

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Sultukrukkudómurinn svarar hversdagslegum spurningum úr hinu daglega lífi út frá lagalegri aðferðafræði.
Sultukrukkudómurinn svarar hversdagslegum spurningum úr hinu daglega lífi út frá lagalegri aðferðafræði. Vísir/Valli
Í dag hefur göngu sína á Alvarpinu önnur sería hlaðvarpsþáttarins Sultukrukkudómurinn.

„Við erum að tala um ýmislegt í daglegu lífi sem við reynum að tækla út frá hinni lagalegu aðferðafræði,“ segir Brynhildur Bolladóttir, lögfræðingur og einn þáttarstjórnenda.

Spurningin sem svarað er í fyrsta þætti er eitthvað sem gestgjafar og gestir samkvæma velta oft fyrir sér: „Hversu lengi máttu geyma bjór heima hjá einhverjum, eftir partí til dæmis, áður en gestgjafinn má drekka hann.“ Viðfangsefnið spratt af fenginni reynslu tveggja þáttarstjórnenda.

„Þetta byrjaði þegar ég var í afmælinu hans Halldórs Kristjáns. Hann bauð upp á bjór en tók fram að fólk ætti að taka með sér veigar sem ég gerði,“ segir Brynhildur alvarleg og bætir við: „Svo var svo vel veitt að ég drakk ekki bjórinn, skildi hann eftir og Halldór Kristján drakk hann nokkrum dögum seinna.“

Sérstakur gestur er Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari og starfandi lögmaður. „Við fengum hann til þess að hjálpa okkur að komast að niðurstöðu.“

Brynhildur segir þau afar ánægð með þáttinn. „Þátturinn er svo góður að ég held að hann verði kenndur á næsta ári í almennunni.“

Þáttarstjórnendur eru Brynhildur, Halldór Kristján Þorsteinsson, Tanja Tómasdóttir, Egill Pétursson og Sindri Rafn Kamban, lögfræðingar og meistaranemar í lögfræði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×