

Heilbrigðisþjónustan á kafi í bið…
„Heildarframlag til HSU á fjárlögum 2015 er um 3,6 milljarðar króna og hjá stofnuninni starfa ríflega 500 manns. Fjöldi íbúa í umdæminu eru um 26.000 manns.“ (Heilbrigðisstofnun Suðurlands. (e.d.). Almennar upplýsingar.)
Miðað við þær tölur eru reiknaðar um 138.462 kr. á notanda á ári EÐA 7.200.000 kr. í laun á starfsmann á ári, sem eru að meðaltali 600.000 kr. á mánuði (mismunandi launaflokkar eru vitaskuld í jafn stórri stofnun og þessari). Þá er eftir allt sem heitir rekstrarkostnaður og viðhald, ferðakostnaður um umdæmið, óvænt útgjöld, þróunarstarf vegna þjónustu, endurmenntun og starfsþróun.
Umdæmið nær frá Þorlákshöfn austur til Hafnar. Það segir sig sjálft að þjónustan hlýtur að bíða skaða á mörgum þessara staða. Þjónusta sem er ein af grunnþjónustum ríkis sem vill hafa starfhæft samfélag.
Á Selfossi er starfrækt stærsta þjónustumiðstöð umdæmisins og eru flestir starfsmenn með meginpart starfsemi sinnar þar. Margir sinna starfseminni á öðrum stöðum í hlutastörfum að auki og nokkrir í fullu starfi. Það er starfrækt læknavakt á heilbrigðisstofnuninni á Selfossi alla daga frá 16-18 og um helgar frá 10-12 (auk þess sem alltaf er bráðavakt til staðar eða í viðbragðsstöðu). Oft eru tveir læknar á vaktinni en oftar en ekki þarf annar þeirra líka að sinna bráðavaktinni auk hjúkrunarfræðinga.
Hvernig finnst ykkur dæmið ganga upp fram að þessu?
Margir heimilislæknar eru hættir að taka við tímapöntunum frá notendum nema þeir séu skráðir heimilislæknar þeirra. Margir heimilislæknar eru einnig komnir með mjög miklar takmarkanir á hvenær megi panta tíma hjá þeim og þá eingöngu ákveðið marga daga fram í tímann. Ef notandi ætlar að panta tíma hjá sérfræðingi er honum oft bent á að panta frekar á starfsstöð hans í Reykjavík, þar sé minni bið.
Ofurálag
Þetta þekkja mjög margir. Þeir sem þurfa sérstaka aðstoð, sumir eldri borgarar, fólk með miklar sérþarfir, börn í áhættuhópum, fólk með astma, fatlaðir og jafnvel óléttar konur neyðast til að sækja þjónustu oft og tíðum utan þjónustusvæðis ef það þolir litla bið. Aðrir, þeir sem hafa haft flensu með háan hita í marga erfiða daga, þeir sem hafa haft niðurdrepandi niðurgang eða uppköst, þeir sem hafa haft mikil óþægindi af stoðkerfisvanda, svefnvanda, húðvanda, greftri í stóru tá, þvagfærasýkingu eða vægu brunasári sem ætlar ekki að gróa t.d., þeir þurfa að fara á vaktina ef einkenni þeirra trufla þá í daglegu starfi og lífi.
Vegna þess ofurálags sem er á starfseminni þá hafa æ fleiri nýtt sér vaktina til að fá svör við vanlíðan eða kvillum almennt. Vaktin sem á að standa frá 16-18 er farin að vera umsetin töluvert fyrir 16 og suma daga jafnvel lengur en 19-20+. Einstaka daga þarf notandi bara að bíða í 40-60 mín, aðra töluvert lengur, bara á almennu vaktinni sem er ætlað að taka álagið af tímapöntunum heimilislækna og svara minna áríðandi köllum. Bráðavaktin er enn eftir auk útkalla. Það þýðir ekki að segja að annars staðar sé þetta verra því eitt rangt réttlætir ekki annað rangt. Kannski var vaktinni ætlað að skapa meiri innkomu í rekstrarumhverfið á kostnað þjónustunnar?
Þetta er grunnþjónusta í rekstri samfélaga. Sparnaðurinn við að draga úr starfsemi getur haft margföldunaráhrif í kostnaði vegna notanda. Margir notendur leita þangað vegna tímabundinna vankanta (sem þó draga úr virkni) sem er hægt að leysa á einfaldan og ódýran hátt, bæði fyrir notandann og samfélagið. Margir notendur kosta þó samfélagið mun meira en hefði þurft vegna tafa, biða og álags í kerfinu. Vankantar sem hefðu getað verið leystir með snöggri íhlutun vinda upp á sig án meðferðar eða úrræða og verða að alvarlegri vanköntum, jafnvel krónískum. Það kostar svo aftur samfélagið í endurhæfingu, örorku, tapi á starfsgetu, íhlutun Tryggingastofnunar og svo framvegis. Fyrir utan andlegu hliðina sem kostar samfélagið mun meira en bara fjárhagslega. Sparnaðurinn skilar sér því í auknum kostnaði neytanda, auknu álagi á kerfið sem um ræðir og auknum kostnaði þess sem rekur kerfið. Dæmið hreinlega gengur ekki upp.
Við í Bjartri framtíð í Árborg viljum skora á ríkið að vinna betur með notendum sínum, notendum þeirrar grunnþjónustu sem ríkinu er skylt að veita í lagalegum og siðferðislegum skilningi. Dæmið verður að ganga upp, annars endum við öll á bólakafi.
Skoðun

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar

Ábyrgð auglýsenda á íslenskri fjölmiðlun
Daníel Rúnarsson skrifar

Vofa illsku, vofa grimmdar
Haukur Már Haraldsson skrifar

Á að láta trúð ráða ferðinni?
Ingólfur Steinsson skrifar

Kópavogur forgangsraðar í þágu kennara, barna og skólastarfs
Ásdís Kristjánsdóttir skrifar

Ofþétting byggðar í Breiðholti?
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Trans fólk er ekki að biðja um sérmeðferð
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hvenær ber fullorðið fólk ábyrð?
Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar

Hugsanaskekkja forsætiráðherra í Evrópumálum – Þetta eru tvö skref!
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Opið bréf til ráðherranna Hönnu Katrínar og Ingu Sæland - blóðmeramálið
Árni Stefán Árnason skrifar

Vinnubrögð Carbfix eru ámælisverð
Ólafur Sigurðsson skrifar

Öllum til hagsbóta að bæta hag nýrra Íslendinga
Marta Wieczorek skrifar

Raunveruleg úrræði óskast takk!
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

(Ó)merkilegir íbúar
Örn Smárason skrifar

Vangaveltur um ábyrgð og laun
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Gervigreind í daglegu lífi: 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Til hvers að læra iðnnám?
Jakob Þór Möller skrifar

Komir þú á Grænlands grund
Gunnar Pálsson skrifar

Ólöglegir ópíóðar: Skaðaminnkandi þjónusta bráðnauðsynleg
Ósk Sigurðardóttir skrifar

Hlustum á náttúruna
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Skattheimta sem markmið í sjálfu sér
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Tæknin hjálpar lesblindum
Guðmundur S. Johnsen skrifar

Tryggja þarf aðkomu sjómanna að fiskveiðiráðgjöfinni
Sigurjón Þórðarson skrifar

Opið bréf til Friðriks Þórs
Steven Meyers,Guðrún Elsa Bragadóttir,Ása Helga Hjörleifsdóttir,Brúsi Ólason,Erlendur Sveinsson,Heather Millard skrifar