Erlent

433 loftbelgir tóku á loft á sama tíma

Atli Ísleifsson skrifar
Áhugamenn frá fjörutíu ríkjum tóku þátt í heimsmetinu.
Áhugamenn frá fjörutíu ríkjum tóku þátt í heimsmetinu. Vísir/AFP
Heimsmet var slegið þegar 433 loftbelgir tóku samtímis á loft í norðausturhluta Frakklands í gær.

Loftbelgirnir tóku allir á loft frá Chambley-Bussières, gamalli bandarískri herstöð. Fyrra heimsmetið var sett á sama stað, en þá voru loftbelgirnir 391.

Áhugamenn frá fjörutíu ríkjum tóku þátt í heimsmetinu.

Ekki er með öllu hættulaust að slá heimsmet sem þessi þar sem hætta er á að þeir rekist saman og rífi sundur belginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×