Alein hoppandi og skoppandi í hljóðveri í tæp þrjátíu ár Guðrún Ansnes skrifar 20. apríl 2015 09:00 Halldóra sinnir hlustendum sínum af natni og tekur mikið tillit til þeirra sem reiða sig á hana dag hvern. vísir/ernir
Halldóra Björnsdóttir hefur sveigt sig og beygt fyrir hlustendur Rása 1 í hátt í þrjátíu ár. Hún segist alls kostar laus við að vera þekkt, sem þykir ansi merkilegt með tilliti til að vera inni á eldhúsgólfi hjá hlustendum í jafn langan tíma og raun ber vitni. Halldóra var rétt tuttugu og sex ára þegar hún tók við þáttunum af sjálfri Jónínu Ben. Til að byrja með hafði hún eiginmann sinn með sér í upptökurnar, þar sem hann var notað sem eins konar tilraunadýr. „Þá gerði hann æfingarnar sem ég sagði og benti mér á ef ég var að segja eitthvað algjörlega óskiljanlegt. Hann endaði reyndar með að segja upp hlutverki sínu,“ segir Halldóra létt. Starfsmenn Ríkisútvarpsins voru jafnan duglegir að vera með og tæknimennirnir taka stundum með henni æfingar. Segir Halldóra hlutverk morgunleikfiminnar gríðarlega mikilvægt fyrir lýðheilsu Íslendinga. „Þarna náum við til ákveðins hóps sem ekki fer á líkamsræktarstöðvar eða stundar aðra hreyfingu,“ segir hún og bætir við að allt hafi orðið kolvitlaust í fyrra þegar leggja átti þáttinn niður. „Fólk hringdi og kvartaði sáran yfir þeirri hugmynd, svo hér erum við enn þá.“Valdimar Örnólfsson og Magnús Pétursson hófu leikfimikennsluna 1957. Hér má sjá framkvæmdina í þá daga.Að sama skapi segist Halldóra vera í góðum tengslum við hlustendur sína, sem eru duglegir við að láta hana vita ef eitthvað er að. „Ég hætti alveg með gólfæfingarnar eftir að hafa fengið kvartanir frá fólki sem átti í stökustu vandræðum með að komast upp af gólfinu aftur. Maður bregst bara við og mér þykir alltaf vænt um að heyra frá fólki.“ Leikfimidrottingin segir mikið hlustað á þennan dagskrárlið og veit til þess að fjölmörg fyrirtæki hafi fyrir fastan lið að opna fyrir útvarpið þegar hún fer í loftið. „Ég veit að Ríkisendurskoðun teygir með og bakvinnsludeild Landsbankans er dugleg að taka þátt. Sambýlin eru líka liðtækir þátttakendur,“ bendir Halldóra á. Halldóra segist hafa barist ötullega fyrir að þættirnir haldi velli og mun gera það áfram. „Þættirnir eru einfaldlega partur af daglegu lífi svo margra og skipta verulegu máli.“
Mest lesið „Verst þegar stelpur sem ég þekki ekkert grípa í brjóstin á mér“ Lífið Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Lífið Patrik sýnir frá lífinu í Flórída á meðan stormurinn gengur yfir Lífið Fæðing sonar Birgittu Lífar í LXS Lífið Mikil stemning á lokahófi RIFF Lífið Aldís og Kolbeinn keyptu í Kópavogi Lífið Hlátrarsköll á svartri kómedíu Lífið „Tilveran breyttist að eilífu til hins betra“ Lífið Forsetahjónin létu sig ekki vanta og eltu veðrið Lífið Patrik í Flórída: „Það er í lagi með mig“ Lífið Fleiri fréttir GameTíví: Óli heimsækir Silent Hill Hlátrarsköll á svartri kómedíu Yung Filly ákærður fyrir nauðgun og líkamsárás Mikil stemning á lokahófi RIFF Patrik í Flórída: „Það er í lagi með mig“ Aldís og Kolbeinn keyptu í Kópavogi Forsetahjónin létu sig ekki vanta og eltu veðrið Fæðing sonar Birgittu Lífar í LXS „Tilveran breyttist að eilífu til hins betra“ „Ákvað því að taka þetta í eigin hendur og grenjaði út tíma og pláss“ Edda Sif og Vilhjálmur eignuðust dreng Patrik sýnir frá lífinu í Flórída á meðan stormurinn gengur yfir „Verst þegar stelpur sem ég þekki ekkert grípa í brjóstin á mér“ Í vandræðum í Bláa lóninu Tólf hundruð fylgdust með tendrun friðarsúlunnar Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Geitin er risin fyrr en nokkru sinni Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Heyrði varla í bónorðinu fyrir látum Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Sjá meira