Arrivabene: Þarf ekki Hamilton meðan ég hef Vettel Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 5. maí 2015 23:00 Sebastian Vettel, Maurizio Arrivabene og Kimi Raikkonen ræða málin eftir kappaksturinn í Kína. Vísir/Getty
Liðsstjóri Ferrari, Maurizio Arrivabene þvertekur fyrir orðróm um að Ferrari sé að gera hosur sínar grænar fyrir heimsmeistaranum Lewis Hamilton.Kimi Raikkonen hefur enn ekki fengið endurnýjaðan samning sinn við Ferrari en núverandi samningur rennur út við lok ársins. Orðrómur hefur verið á kreiki um að Ferrari vilji fá Hamilton inn sem eftirmann Raikkonen. Raikkonen hefur hins vegar staðið sig mjög vel að undanförnu, sérstaklega eftir að Arrivabene setti oprinberlega pressu á Finnan um að standa sig til að halda sæti sínu hjá liðinu. Hamilton á enn eftir að setja penna á blað hjá Mercedes fyrir næsta tímabil. Því hefur verið haldið fram síðan í janúar að það styttist í að samningar náist og að aðeins sé um tæknileg, lögfræðileg úrlausnar efni að ræða og þau verði leyst hratt og örugglega. Samningar hafa enn ekki náðst í herbúðum Mercedes og ýtir það enn frekar undir orðróminn sem Arrivabene neitar svo ákaft að eigi sér stoð í raunveruleikanum. „Ég þarf ekki Lewis Hamilton þegar ég er með þungavigtar ökumann eins og (Sebastian) Vettel. Ég myndi frekar leita að ungum hæfileikaríkum ökumönnum til að aka við hlið Sebastian,“ sagði Arrivabene. Athugasemdin um unga efnilega ökumenn gefur byr undir báða vængi öðrum orðrómi. Margir spekingar telja að Ferrari sé þegar búið að semja við Valtteri Bottas sem nú ekur fyrir Williams liðið. Bottas er ungur og þykir afar efnilegur. Aðspurður hvort sú væri raunin sagði Arrivabene: „Ég lofaði á undirbúningstímabilinu að ég myndi aldrei ljúga að fjölmiðlum, en hvað þetta mál varðar er of snemmt að gefa nákvæmt svar,“ sagði liðsstjórinn að lokum.
Formúla Tengdar fréttir Lotus kemur með stórar uppfærslur til Spánar Lotus liðið í Formúlu 1 ætlar að mæta til keppni á Spáni næstu helgi með miklar uppfærslur á bílum sínum. 3. maí 2015 09:00 Stewart: Rosberg mun njóta góðs af pásunni Jackie Stewart telur að þriggja vikna hléið sem klárast næstu helgi geri niðurlútum Nico Rosberg mjög gott. 4. maí 2015 17:00 Moss: Rosberg vinnur Hamilton aldrei Formúlu 1 goðsögnin Stirling Moss segir að Nico Rosberg eigi ekki möguleika á að vinna Lewis Hamilton í baráttunni um heimsmeistaratitil á meðan þeir eru í sama liði. 1. maí 2015 16:45 Bílskúrinn: Barátta í Barein Lewis Hamilton rétt náði að koma fyrstur í mark í spennandi keppni. Pastor Maldonado tókst ekki að klára og Valtteri Bottas varðist vel. 22. apríl 2015 14:30 Hakkinen: Ekki viss um hvort Ferrari ætti að halda Raikkonen Tvöfaldi heimsmeistarinn Mika Hakkinen segir Ferrari eiga erfiða ákvörðun fyrir höndum. Ferrari þarf að ákveða hvort það vill framlengja samning Kimi Raikkonen. 28. apríl 2015 16:00 Eyðsluþak með snúning Fyrrum forseti FIA, Max Mosley hefur lengi verið talsmaður einhverskonar eyðsluþaks í Formúlu 1. Hann hefur nú komið fram með nýja hugmynd um útfærslu á slíku. 29. apríl 2015 15:30 Mest lesið Sektaður fyrir að kyssa konu sína og barn Sport Eftir alla erfiðleikana ætlar Edda að brosa mikið og njóta Sport Verða að borga Eriksen og dönsku stjörnunum tugi milljóna króna Fótbolti FCK hafnar risatilboði frá Spáni í Orra Stein Fótbolti Bobby Firmino orðinn prestur Enski boltinn Íþróttahjón opna apótek saman: „Þetta var búið að blunda í okkur í einhvern tíma“ Sport Nefna skó í höfuðið á Kroos: „Hann varð bara ástfanginn“ Fótbolti Feðgar komu við sögu þegar Ingi Björn missti bæði markametin sín Íslenski boltinn Þakkir til Jimmy Floyd Hasselbaink eftir frábæra vítakeppni enska liðsins Fótbolti Cecilía á leið til Inter Fótbolti Fleiri fréttir Hélt að hann myndi aldrei vinna aftur: „Ég get ekki hætt að gráta“ Hamilton fyrstur í fyrsta sinn í langan tíma Semja við Bellingham Formúlu 1 heimsins McLaren vill að Verstappen verði refsað: Allur heimurinn veit hver er sá seki Russell fagnaði sigri eftir árekstur Verstappen og Norris Þjarmað að Verstappen á blaðamannafundi Biðlar til „klikkaðra samsæriskenningasmiða“ að leita til sálfræðings Verstappen vann sjöunda kappaksturinn á tímabilinu Lando Norris á ráspól á morgun Höfðu hendur í hári fjárkúgara Michael Schumacher Verstappen sigraði í Kanada Russell á ráspól á sama tíma og Verstappen Miklar breytingar framundan á bílum í Formúlu 1 Perez framlengir og framtíð Sainz enn í lausu lofti Alpine framlengir ekki við Ocon eftir áreksturinn í Mónakó Sjá meira
Lotus kemur með stórar uppfærslur til Spánar Lotus liðið í Formúlu 1 ætlar að mæta til keppni á Spáni næstu helgi með miklar uppfærslur á bílum sínum. 3. maí 2015 09:00
Stewart: Rosberg mun njóta góðs af pásunni Jackie Stewart telur að þriggja vikna hléið sem klárast næstu helgi geri niðurlútum Nico Rosberg mjög gott. 4. maí 2015 17:00
Moss: Rosberg vinnur Hamilton aldrei Formúlu 1 goðsögnin Stirling Moss segir að Nico Rosberg eigi ekki möguleika á að vinna Lewis Hamilton í baráttunni um heimsmeistaratitil á meðan þeir eru í sama liði. 1. maí 2015 16:45
Bílskúrinn: Barátta í Barein Lewis Hamilton rétt náði að koma fyrstur í mark í spennandi keppni. Pastor Maldonado tókst ekki að klára og Valtteri Bottas varðist vel. 22. apríl 2015 14:30
Hakkinen: Ekki viss um hvort Ferrari ætti að halda Raikkonen Tvöfaldi heimsmeistarinn Mika Hakkinen segir Ferrari eiga erfiða ákvörðun fyrir höndum. Ferrari þarf að ákveða hvort það vill framlengja samning Kimi Raikkonen. 28. apríl 2015 16:00
Eyðsluþak með snúning Fyrrum forseti FIA, Max Mosley hefur lengi verið talsmaður einhverskonar eyðsluþaks í Formúlu 1. Hann hefur nú komið fram með nýja hugmynd um útfærslu á slíku. 29. apríl 2015 15:30