Innlent

Biggest Loser-sigurvegari Mosfellingur ársins

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Jóhanna Elísa er Mosfellingur ársins 2014.
Jóhanna Elísa er Mosfellingur ársins 2014. Mynd/Raggi Óla
Fyrsti sigurvegari Biggest Loser á Íslandi, Jóhanna Elísa Engelhartsdóttir, hefur verið valin Mosfellingur ársins.

Í samtali við bæjarblaðið Mosfelling segir Jóhanna að kúvending hafi orðið í lífi sínu á seinasta ári og að árið hafi verið viðburðaríkt:

„Ég fór að hugsa um heilsuna og setti sjálfa mig í fyrsta sætið. Ég hugsaði mig ekki tvisvar um þegar ég skráði mig í The Biggest Loser og ætlaði mér frá byrjun að vinna þetta.“

Jóhanna léttist um rúm 52 kíló og segir að næsta skref hjá sér sé að hjálpa öðrum. Hún stefnir á að útskrifast sem einkaþjálfari í vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×