Enski boltinn

Jeppe Hansen spilar aftur með Stjörnunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jeppe Hansen í leik á móti Val.
Jeppe Hansen í leik á móti Val. Vísir/Valli
Stjarnan og danska félagið Fredericia eru við það að ljúka samkomulagi um kaup Garðabæjarliðsins á danska framherjanum Jeppe Hansen en þetta kemur fram á heimsíðu Silfurskeiðarinnar, stuðningsmannasveitar Stjörnunnar.

Jeppe Hansen mun semja við Stjörnuna til tveggja ára um leið og hann hefur staðist læknisskoðun.  Þetta eru frábærar fréttir fyrir Íslandsmeistara Stjörnunnar sem sáu á eftir landa hans Rolf Toft til Víkinga.

Jeppe Hansen skorðai sex mörk í níu leikjum með Stjörnunni í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð en hann fór frá liðinu 3. júlí. Hansen skoraði meðal annars fimm mörk í síðustu fimm leikjum sínum og tvö mörk í lokaleiknum sem var á móti Fram á Laugardalsvellinum.

„Líkt og flestir Stjörnumenn muna, spilaði Jeppe fyrri hluta tímabils með okkur Stjörnumönnum síðasta sumar og stóð sig með ágætum.  Við Skeiðungar bjóðum Jeppe hjartanlega velkominn aftur í Garðabæ!," segir í fréttinni á silfurskeid.in.

Jeppe Hansen er annar gamall leikmaður Stjörnunnar sem snýr aftur „heim" í Garðabæinn en áður hafði Halldór Orri Björnsson komið til baka úr atvinnumennsku í Svíþjóð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×