Vill að reykvísk börn fái líka að njóta sólmyrkvans Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 27. janúar 2015 14:00 "Það er mjög tignarlegt að fylgjast með þessu og þess vegna nákvæmlega viljum við gera krökkunum það kleift og læra eitthvað um náttúruna í leiðinni. Það er það eina sem vakir fyrir okkur,“ segir Sævar. vísir/anton
Mesti sólmyrkvi hérlendis í sextíu ár verður þann 20. mars næstkomandi. Í tilefni þess ætla stjörnuáhugamenn að gefa öllum grunnskólabörnum landsins sérstök sólmyrkvagleraugu. Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness í samstarfi við Hótel Rangá hyggjast leyfa öllum grunnskólabörnum, sem eru 45 þúsund talsins, að berja sólmyrkvann augum á sem öruggastan hátt. Án gleraugnanna er erfitt að upplifa þennan stórmerka atburð því augun eru afar viðkvæm fyrir geislum sólarinnar og því mikilvægt að verja augun með sérstökum hlífðarbúnaði.Deildarmyrkvi á sólu árið 2008, séð frá Auckland í Ástralíu.vísir/Ómögulegt að fá ómerktar vörurReglur Reykjavíkurborgar sem kveða á um að ekki megi afhenda börnum gjafir á skólatíma, séu á gjöfunum merkingar, hefur þó gert stjörnuáhugamönnum heldur erfitt fyrir. Því munu fulltrúar Stjörnuskoðunarfélagsins funda með skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar á næstu dögum. „Til þess að fylgja eftir þessum reglum hjá Reykjavíkurborg þá neyðumst við til að hafa gleraugun ómerkt, sem gerir verkefnið enn erfiðara en það þyrfti að vera. Það er útilokað að fá nokkurn skapaðan hlut í heiminum án þses að hann sé merktur fyrirtækinu sem framleiðir hann. En gleraugun eru hins vegar frá fyrirtæki sem er ekki að selja eitt eða neitt á Íslandi þannig að við vonum að þessi merking muni ekki skipta máli,“ segir Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness.Sjá einnig: Börn í Reykjavík mega ekki fá tannbursta Gjafirnar í fræðsluskyniKostnaður við gjafirnar eru rúmar þrjár milljónir. Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness mun greiða tvær milljónir og Hótel Rangá milljón. Þá verður börnunum boðið að fylgjast með myrkvanum í stjörnuskoðunarhúsinu við hótelið. „Næsti myrkvi, sem verður svona mikill, verður ekki fyrr en árið 2026. Það er mjög tignarlegt að fylgjast með þessu og þess vegna nákvæmlega viljum við gera krökkunum það kleift og læra eitthvað um náttúruna í leiðinni. Það er það eina sem vakir fyrir okkur,“ segir Sævar. „Ef þeir hafna því þá verða þeir bara að eiga það við sig að koma í veg fyrir að börn í Reykjavík sjái þetta. En ég mun finna einhverja leið til að koma gleraugunum til krakkanna, hvernig sem verður.“ „Ég mun finna einhverja leið til að koma gleraugunum til krakkanna, hvernig sem verðurm,“ segir Sævar.vísir/gettyHugmyndina að gjöfunum á Sævar. Hún er jafnframt hluti af Alþjóðlegu ári ljóssins, sem er verkefni á vegum Sameinuðu þjóðanna. „Það er verið að vekja fólk til umhugsunar um ljós og mikilvægi þess og hvernig ljós tengjast okkur í daglegu lífi – í vísindum, listum og hverju sem er. Ég fékk þessa hugmynd eina nóttina, þetta er svo rosalega tignarlegt sjónarspil þannig að það er um að gera að nýta tækifærið. Hvar er betri sýning á ljósinu sjálfu en með sólinni sjálfri?“ segir hann.Sjá einnig: Vilja ekki að börn séu sett í erfiðar aðstæður Þeir sem hafa áhuga á að festa kaup á sólmyrkvagleraugum geta gert það í gegnum Stjörnuskoðunarvefinn eða hjá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness.Svona mun sólmyrkvinn líta út, séður úr Reykjavík, þegar hann nær hámarki klukkan 9.37, föstudaginn 20. mars. Örþunn rönd mun þá sjást af sólinni.Magnað sjónarspil í örfáar mínútur Tunglið mun hylja um 97,5 prósent sólar, séð úr Reykjavík, þegar myrkvinn nær hámarki klukkan 09.37. Þá mun tunglið myrkva 99,4 prósent sólar, séð frá Austurlandi, þar sem hann verður dimmastur. Dökkur himinn mun þó aðeins sjást í nokkrar mínútur því strax klukkan 09.40 fer að birta verulega á ný.Sjá einnig: Fullkomnasta stjörnuskoðunarhús landsins Þar sem sólin hylst ekki að fullu kallast þetta deildarmyrkvi en frá árinu 1954 hefur enginn slíkur náð að hylja sól meira en 77 prósent hérlendis, að sögn Sævars Helga. Myrkvinn þann 20. mars stendur yfir í tvær klukkustundir og lýkur honum klukkan 10.39, þegar tunglið færist út úr skífu sólar. Sólmyrkvar af þessu tagi eru það sjaldgæfir að þessi verður sá dimmasti á Íslandi í 60 ár, og þau sem missa af honum þurfa að bíða í ellefu ár eftir næsta tækifæri til að sjá almyrkva, sem verður árið 2026. Meiri fróðleik um sólmyrkvann 20. mars má finna á Stjörnufræðivefnum og astro.is.Hér má sjá tímasetningar fyrir sólmyrkvann í Reykjavík og á Suðurlandi 20. mars næstkomandi.Sævar Bragi var í viðtali á Stöð 2, skömmu eftir að stjörnuskoðunarhúsið var tekið í notkun. Hér má síðan sjá áhugaverð fræðslumyndbönd um sólmyrkva. Annars vegar frá BBC, sem fjallaði um sólmyrkva árið 2010. Hins vegar um deildarmyrkva á sólu í Ástralíu árið 2012.
Tengdar fréttir Grunnskólabörn í Reykjavík mega ekki fá hjálma merkta Eimskipafélaginu Kiwanishreyfingin hefur gefið grunnskólabörnum hjálma sem Eimskipafélagið hefur lagt til. Það má hreyfingin ekki gera lengur í Reykjavík. 19. janúar 2015 18:38 Vilja ekki að börnin séu sett í erfiðar aðstæður "Reglurnar eru alveg skýrar með það og ekki hægt að heimila að gefa börnum gjafir frá fyrirtækjum á skólatíma,“ segir Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. 20. janúar 2015 09:56 Borgarfulltrúi spyr hvort aðrar reglur gildi um iPad og smokka Fulltrúar í borgarstjórn eru sammála því að endurskoða þurfi reglur er kveða á um gjafir á skólatíma. 20. janúar 2015 11:47 Börn í Reykjavík mega ekki fá tannbursta Tannverndarvika hefst í febrúar og fá öll börn, utan höfuðborgarsvæðisins, tannbursta, tannkrem og tannþráð að gjöf. 19. janúar 2015 15:15 Dimmasti sólmyrkvi á Íslandi frá árinu 1954 Sólmyrkvi, sá mesti hérlendis í sextíu ár, verður þann 20. mars næstkomandi, eftir tæpa þrjá mánuði, - þá rökkvast himinn í nokkrar mínútur þegar venjulega er hábjartur dagur. 30. desember 2014 20:15 Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Innlent Flæddi inn í hús á Arnarnesi Innlent Flugferðum aflýst Innlent Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Erlent Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Innlent Fleiri fréttir Berglind nýr dómandi við Endurupptökudóm Flugferðum aflýst Vegur að Patreksfirði lokaður vegna snjóflóðs Egill Þór er látinn Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Flæddi inn í hús á Arnarnesi Ný ríkisstjórn fundar í dag „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Missti stjórn á bílnum og endaði inni í garði Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland Tvö tröllvaxin mál og sækja eigi tekjurnar í fiskinn „Heimsins furðulegasti fiskur“ afhentur í fjármálaráðuneytinu Kirkjutröppurnar opnaðar að nýju og hiti í hverju þrepi Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Umferðartafir vegna bílveltu á Mýrum Lyklaskipti og afmæli elsta Íslendingsins Segir Helga Magnús óhæfan til að gegna embættinu „Þannig að jólin komu snemma hjá mér“ „Ég fæ ekki séð hvaða rugl þetta er“ Fyrsti læknirinn í heilbrigðisráðuneytinu Það bráðvantar börn á leikskólann á Hvanneyri „Þú veist að ég er sú sem að passar best hérna inn“ „Ein allra besta jólagjöfin“ „Ég veit að þér mun sömuleiðis líða vel hér“ Skortur á sjúkragæslu á viðburðum hafi áhrif á neyðarþjónustu Eftirliti á viðburðum ábótavant og skynsemi í orkumálum Vegir víða hálir á morgun og blint á fjallvegum Stjórnarleiðtogar sitja fyrir svörum á Sprengisandi Sjá meira
Grunnskólabörn í Reykjavík mega ekki fá hjálma merkta Eimskipafélaginu Kiwanishreyfingin hefur gefið grunnskólabörnum hjálma sem Eimskipafélagið hefur lagt til. Það má hreyfingin ekki gera lengur í Reykjavík. 19. janúar 2015 18:38
Vilja ekki að börnin séu sett í erfiðar aðstæður "Reglurnar eru alveg skýrar með það og ekki hægt að heimila að gefa börnum gjafir frá fyrirtækjum á skólatíma,“ segir Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. 20. janúar 2015 09:56
Borgarfulltrúi spyr hvort aðrar reglur gildi um iPad og smokka Fulltrúar í borgarstjórn eru sammála því að endurskoða þurfi reglur er kveða á um gjafir á skólatíma. 20. janúar 2015 11:47
Börn í Reykjavík mega ekki fá tannbursta Tannverndarvika hefst í febrúar og fá öll börn, utan höfuðborgarsvæðisins, tannbursta, tannkrem og tannþráð að gjöf. 19. janúar 2015 15:15
Dimmasti sólmyrkvi á Íslandi frá árinu 1954 Sólmyrkvi, sá mesti hérlendis í sextíu ár, verður þann 20. mars næstkomandi, eftir tæpa þrjá mánuði, - þá rökkvast himinn í nokkrar mínútur þegar venjulega er hábjartur dagur. 30. desember 2014 20:15