Formúla 1

Force India frestar frumsýningu enn frekar

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Force India bíllinn frá því í fyrra verður í Barcelona.
Force India bíllinn frá því í fyrra verður í Barcelona. Vísir/Getty
Force India liðið hefur staðfest að 2015 bíll þess verði ekki notaður fyrr en í síðustu æfingalotunni.

Liðið var að vona að verksmiðju liðsins tækist að koma bílnum saman fyrir aðra æfingalotuna. Það tekst ekki en hún hefst 19. febrúar. Liðið mun þó mæta til æfinga og notast við bíl síðasta árs. Liðið missti alveg af fyrstu æfingunum í Jerez.

Þessi tíðindi blása lífi í orðróm um að liðið gæti verið í fjárhagsvandræðum. Efasemdir um að liðinu takist að vera með á tímabilinu aukast í kjölfarið.

Aðstoðarliðsstjóri Force India, Bob Fernley hefur gefið það skýrt út að liðið verði tilbúið til keppni í Ástralíu þegar að því kemur. Þrátt fyrir erfiða byrjun á tímabilinu.

„Við verðum í Melbourne þegar tímabilið byrjar, það þarf ekkert að efast um það. Já, bíllinn verður lítið prófaður, en við erum að gera allt sem mögulegt er til að tryggja að við mætum til Ástralíu í þokkalegu formi og með eins mikið prófaðan bíl og mögulegt er,“ sagði Fernley í samtali við Autosport nýlega.


Tengdar fréttir

Hulkenberg áfram hjá Force India

Nico Hulkenberg verður áfram ökumaður Force India liðsins í formúlu 1 á næsta tímabili. Staðfesting kom frá liðinu og ökumanninum í gær.

Force India vill keppa við Williams

Force India bindur vonir við framfarir sem liðið hefur þegar fundið. Markið er sett hátt. Stefnan er að keppa við Williams á næsta tímabili.

Svona líta nýju formúlu eitt bílarnir út | Myndir

Eftir langan vetur er loksins komið að því, nýjir Formúlu bílar hafa litið dagsins ljós. Það er alltaf forvitnilegt að sjá hvað hönnuðum liðanna dettur í hug og hver þróunin verður í framhaldinu.

Bílskúrinn: Ballið í Brasilíu í bland við framtíðarspá

Næst síðasta keppni tímabilsins er búin. Lewis Hamilton leiðir enn þrátt fyrir að Nico Rosberg hafi unnið í Brasilíu. Hvað þarf að gerast til að Rosberg verði meistari, hver sagði hvað um framtíð Formúlu 1 og hver ætlar að hjálpa hverjum að verða heimsmeistari?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×