Lífið

Ekkert á milli prinsins og leikkonunnar

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Ekkert á milli Harry og Watson
Ekkert á milli Harry og Watson vísir/getty
Breska leikkonan Emma Watson tók af öll tvímæli um að hún og Harry Bretaprins væru að stinga saman nefjum. Orðrómur hafði sprottið upp eftir frétt í áströlsku slúðurblaði. Þar var því haldið fram að þau hefðu hitt hvort annað nokkrum sinnum og þeim kæmi ágætlega saman.

Hvorki aðdáendur prinsins né leikkonunar voru upp með sér eftir þessi tíðindi. En málinu virðist nú lokið eftir að leikkonan tísti að fólk ætti ekki að trúa öllu sem það les. Síðar sama dag sendi hún frá sér annað tíst þar sem fram kom að það að giftast prinsi væri ekki skilyrði þess að verða prinsessa.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×