Lífið

Bað kærustu sinnar á hverjum degi í heilt ár

Dean Smith fór heldur óhefðbundna leið þegar hann bað kærustu sína Jennifer Kessel um að giftast sér. Á afmælisdeginum hennar nýverið komst Jennifer að því að Dean hefði borið upp bónorðið á hverjum degi í heilt ár.

Uppgötvunin átti sér stað í ferð stjórfjölskyldunnar til Aruba þar sem systir Jennifers skipaði henni að fara niður í móttöku hótelsins sem þau gistu á. Þar tóku bróðir hennar og vinur á móti henni sem leiddu hana niður á strönd þar sem faðir hennar og stjúpmóðir afhentu henni tæki til að horfa á myndband.

„Þú hefur væntanlega áttað þig á því að afmælisglaðningurinn þinn er þetta myndbandi,“ segir Dean í upphafi myndbandsins. „Það sem þú veist ekki er að ég hef undirbúið þennan glaðning í heilt ár,“ segir Dean. Í kjölfarið sést Dean á afmælisdegi Jennifers fyrir ári síðan segja í myndavélina: „Ég gerði þetta myndbandi til að segja þér að ég ákvað í dag að ég vil vera með þér til æviloka.“

Hann ákvað því að biðja hennar á hverjum degi í heilt ár og fylgja í kjölfarið öll þau 365 skipti sem hann bar upp bónorðið. Eftir að Jennifer hafði horft á myndbandið stóð hún upp og svaraði bónorðinu játandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×