Fjögurra ára nauðgunardómur ómerktur í Hæstarétti Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. mars 2015 09:56 Hæstiréttur hefur ómerkt fjögurra fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni sem sakfelldur var fyrir nauðgun í júní í fyrra. Vísir/Getty
Hæstiréttur hefur ómerkt fjögurra ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni sem sakfelldur var fyrir nauðgun í júní í fyrra. Dómurinn er ómerktur vegna þess að um tvo ákæruliði var að ræða þar sem lýst var ólíkri háttsemi. Hæstiréttur telur að héraðsdómur hefði átt að taka hvorn ákæruliðinn fyrir sig til sjálfstæðrar úrlausnar en það var ekki gert. Héraðsdómur steypti röksemdum fyrir sekt mannsins saman „án þess að rakinn væri framburður ákærða og vitna og gerð grein fyrir öðrum sönnunargögnum varðandi hvorn ákærulið fyrir sig og án þess að brotin hefðu hvort fyrir sig verið heimfært til þeirra hegningarlagaákvæða sem í ákæru greindi“, eins og segir í dómi Hæstaréttar. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að brot mannsins hafi verið framin á sitthvorum staðnum og að nokkur tími hafi liðið á milli þeirra. Manninum var annars vegar gefið að sök að hafa í mars 2013 káfað á brjóstum og kynfærum konunnar og látið hana sjúga á sér kynfærin. Hins vegar var maðurinn sakaður um að hafa síðar sömu nótt stungið fingri í leggöng konunnar, beitt hana ofbeldi og hótunum og notfært sér líkamlega yfirburði til að halda henni fastri. Þá hafi hann afklætt konuna að neðan, glennt fætur hennar í sundur og haft við hana samræði. Ljóst er að málið þarf nú að fara aftur heim í hérað til löglegrar meðferðar og dómsálagningar.
Mest lesið „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Innlent Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Innlent Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð Innlent Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Innlent Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Innlent Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Innlent Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Innlent Fleiri fréttir Kostnaður við snagana nam 1,7 milljónum Fluttur á spítala vegna alvarlegs efnabruna af völdum ætandi efnis Slátur og stuð í félagsheimilinu á Blönduósi Alma vill leiða Samfylkinguna í Kraganum Nektarmyndir gerðar óskýrar sjálfkrafa á Instagram Grunaður um alvarlega líkamsárás gegn fyrrverandi sambýliskonu Hannes snýr baki við Sjálfstæðisflokknum og fer fram fyrir Samfylkingu Átti samtal við Höllu Hrund fyrir stjórnarslitin Vendingar í pólitíkinni og áhrif frestunar bankasölu á markaðinn Guðmundur Árni hættur við og styður Ölmu Vistmaður og starfsmaður Stuðla fluttir á bráðamóttöku Bilun í brunaboða á Keflavíkurflugvelli Snorri vill leiða Miðflokkinn í Reykjavík Þórdís svarar gagnrýni vegna húsnæðisstyrks Slagurinn harðnar í Suðvestur hjá Sjálfstæðisflokki „Hann tók algjörlega völdin yfir lífi mínu“ Formaður Framsóknar segir ríkisstjórnina hafa talað sjálfa sig niður Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á Stuðlum Nokkrir foreldrar sóttu börn á lögreglustöð „Það þarf að nýta auðlindir landsins, það er alveg ljóst“ Þiggja milljónir í húsnæðisstyrk þótt þau búi nálægt Alþingi Fleiri þvottavélar en pólitíkusar á skjánum vikuna fyrir kosningar Hefur sett saman um 100 módelbíla í Hveragerði Dæmi um að menntaðir kennarar nái ekki endum saman Óvænt og taktískt útspil Sigurðar Inga Páll Valur vill forystusæti fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi Fyrstu skoðanakannanir eftir stjórnarslit og öll auglýsingapláss uppbókuð Lætur af störfum sem bæjarstjóri Voga Vill leiða Viðreisn í Suðurkjördæmi Eldur kviknaði í bílskúr Sjá meira