Jóhanna Ruth vann söngkeppni Samfés Stefán Árni Pálsson skrifar 14. mars 2015 16:47
Jóhanna Ruth Luna Jose úr félagsmiðstöðinni Fjörheimum í Reykjanesbæ bar sigur úr býtum úr Söngkeppni Samfés sem fór fram í Laugardalshöll í dag. Jóhanna Ruth söng lagið Girl on Fire með Alicia Keys. Í öðru sæti lenti Símon Orri Jóhannsson úr Arnardal með óperuna La donna e mobile. Í þriðja sæti var Levi Didriksen úr félagsmiðstöðinni Hundrað&ellefu en hann flutti lagið Titanum. Félagsmiðstöðin Laugó fékk sérstök verðlaun fyrir frumlegasta atriðið en söngkonurnar Ragnheiður Ingunn og Bríet Ísis fluttu frumsamið lag, Sólskin. Dómnefndin var skipuð Hildi Kristínu Stefánsdóttur, Rögnu Björgu Ársælsdóttur, Stefaníu Svavarsdóttur og Sverri Bergmann. Þau áttu það erfiða verkefni fyrir höndum að velja bestu atriðin af þeim þrjátíu sem kepptu. Undankeppnir fóru fram í öllum landshlutum og bestu söngvararnir og söngkonurnar voru valin til þátttöku. Það má því með sanni segja að efnilegustu söngvarar og söngkonur landsins hafi stigið á svið í höllinni í dag. Flest laganna voru flutt af ungum hljóðfæraleikurum og nokkur þeirra voru frumsamin. Keppnin var send út í beinni útsendingu á sjónvarsstöðinni Bravó. Söngkeppni Samfés, samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi er hluti af SamFestingnum – stærstu unglingaskemmtun landsins. Rúmlega 2.200 áhorfendur fylgdust með þrjátíu bestu söngatriðum landsins í dag en í gærkvöldi fylltu 4.300 unglingar höllina og fylgdust með tónleikum með helstu hljómsveitum landsins.
Mest lesið Dásamlegt að koma heim með barnið sem hún þráði svo lengi Lífið Fékk unnustu í afmælisgjöf Lífið Dreymir um að eiga Range Rover Lífið Spilar á flygil innan um risatrukka: „Spurning um líf og dauða fyrir klassíska tónlist“ Lífið Ég hætti að lifa bara af - og fór að LIFA, að vera þátttakandi í lífinu Lífið samstarf Glæsihús umvafið ósnortnu hrauni Lífið Vegleg afmælistilboð á gæðavörum í eldhús og baðherbergi Lífið samstarf Andinn á tökustað í Glæstum vonum: „Spurði fyrst hvort ég gæti verið vondur tvífari“ Lífið „Ákvað því að taka þetta í eigin hendur og grenjaði út tíma og pláss“ Lífið Eins og þruma úr heiðskíru lofti Lífið Fleiri fréttir Glæsihús umvafið ósnortnu hrauni Frumsýning á Vísi: Stikla úr sýningunni Óskaland Teknó baróninn á Radar á laugardag Fékk unnustu í afmælisgjöf Andinn á tökustað í Glæstum vonum: „Spurði fyrst hvort ég gæti verið vondur tvífari“ Dásamlegt að koma heim með barnið sem hún þráði svo lengi Dreymir um að eiga Range Rover Spilar á flygil innan um risatrukka: „Spurning um líf og dauða fyrir klassíska tónlist“ GameTíví: Óli heimsækir Silent Hill Hlátrarsköll á svartri kómedíu Yung Filly ákærður fyrir nauðgun og líkamsárás Mikil stemning á lokahófi RIFF Patrik í Flórída: „Það er í lagi með mig“ Aldís og Kolbeinn keyptu í Kópavogi Forsetahjónin létu sig ekki vanta og eltu veðrið Fæðing sonar Birgittu Lífar í LXS „Tilveran breyttist að eilífu til hins betra“ „Ákvað því að taka þetta í eigin hendur og grenjaði út tíma og pláss“ Edda Sif og Vilhjálmur eignuðust dreng Patrik sýnir frá lífinu í Flórída á meðan stormurinn gengur yfir „Verst þegar stelpur sem ég þekki ekkert grípa í brjóstin á mér“ Í vandræðum í Bláa lóninu Tólf hundruð fylgdust með tendrun friðarsúlunnar Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Geitin er risin fyrr en nokkru sinni Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Sjá meira