Lífið

Obama les tíst til sín - Myndband

Samúel Karl Ólason skrifar
Gallabuxurnar sem Obama sást eitt sinn í þykja einstaklega hallærislegar.
Gallabuxurnar sem Obama sást eitt sinn í þykja einstaklega hallærislegar.
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, var gestur í spjallþættinum hjá Jimmy Kimmel í gær. Af og til hefur Kimmel fengið stjörnur til að lesa upp tíst sem þeim þykir einkar kvikyndisleg og fékk hann forsetann til að gera það einnig.

Meðal þess sem gert var grín að voru umdeildar gallabuxur sem Obama sást einu sinni í.

Tístin sem forsetinn las upp voru þó ekki eins grimmilega og áður hafa sést og seinna í þættinum sagði Obama að það væri verra hvernig þingið talaði um hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×