Strigaskórinn, Mountain Dew-ið og kynþokkinn: Sigmundur Davíð fertugur Birgir Olgeirsson skrifar 12. mars 2015 11:45 Forsætisráðherrann í gegnum tíðina. Vísir/Daníel Rúnarsson/GVA/Róbert Reynisson/Valgarður
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra er fertugur í dag og því ekki úr vegi að rifja lauslega upp Sigmund Davíð eins og hann hefur birst þjóðinni í fjölmiðlum. Hann fæddist 12. mars árið 1975 en foreldrar hans eru Gunnlaugur M. Sigmundsson, fyrrverandi alþingismaður, og Sigríður G. Sigurbjörnsdóttir, lífeindafræðingur og skrifstofustjóri. Eiginkona Sigmundar Davíðs er Anna Sigurlaug Pálsdóttir mannfræðingur og eiga þau saman eina dóttur. Sigmundur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1995. Hann er með BS-próf frá viðskipta- og hagfræðideild sem hann lauk við Háskóla Íslands árið 2005 auk hlutanáms í fjölmiðlafræði. Þá stundaði hann nám við stjórnmálafræðideild Kaupmannahafnarháskóla í alþjóðasamskiptum og opinberri stjórnsýslu og einnig framhaldsnám í hagfræði og stjórnmálafræði við Oxford-háskóla með áherslu á tengsl hagrænnar þróunar og skipulagsmála.Sigmundur í Kastljósi ásamt Svanhildi Hólm.Hann starfaði sem þáttastjórnandi og fréttamaður í hlutastarfi hjá Ríkisútvarpinu á árunum 2000 til 2007 og varð nokkuð þekktur fyrir vikið. Til að mynda varð hann þriðji í kosningu hlustenda Rásar 2 á kynþokkafyllsta karli ársins 2004. Sá kynþokkafyllsti það árið var tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson en Guðni Hauksson, sjómaður frá Bolungarvík, varð í öðru sæti í kosningunni. Það fór ekki mikið fyrir Sigmundi Davíð eftir að hann hafði horfið úr sjónvarpinu en skömmu fyrir hrun birtist í hann á ný þar sem hann kynnti rannsóknir sínar á þróun borga í austur Evrópu.Eftir efnahagshrunið árið 2008 var hann nefndur sem næsti formaður Framsóknarflokksins og tók hann við af Valgerði Sverrisdóttur eftir flokksþing framsóknar 18. janúar árið 2009 eftir að hafa hlotið 56 prósent atkvæða í seinni umferð formannskosninganna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.Vísir/ValliSigmundur Davíð fór mikinn í stjórnarandstöðu á þingi og gekk Framsóknarflokkurinn hvað harðast fram í Icesave-málinu svokallaða þar sem Sigmundur, ásamt InDefence-hópnum og fleirum, barðist gegn því að Icesave-samningarnir yrðu samþykktir. Það mál og loforð Framsóknarflokksins um leiðréttingu verðtryggðra fasteigna gerðu Framsóknarflokkinn afar vinsælan í skoðanakönnunum fyrir kosningar til Alþingis árið 2013 og varð Sigmundur Davíð í kjölfarið forsætisráðherra landsins í ríkisstjórnar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins. Hér fyrir neðan eru rifjuð upp nokkrar af þeim fréttum af Sigmundi sem hafa farið hvað hæst í gegnum tíðina. 21. ágúst 2011 Má þar byrja á að nefna megrunarkúrinn sem Sigmundur Davíð fór í. Kúrinn nefndi Sigmundur Davíð íslenska kúrinn sem fólst í því að borða bara íslenskan mat. Sigmundur sagði að aðeins helmingur þeirrar fæðu sem neytt er á Íslandi er framleidd hérlendis. Því fékk Sigmundur það út að ef manneskja borðar bara það íslenska borðar hún helmingi minna. Með því að auka svo neyslu á íslenska matnum um 50 prósent endar manneskjan í 75 prósent af fyrri neyslu. 4. apríl 2013 birtist viðtal við Sigmund Davíð í Fréttatímanum þar sem hann fór í ísbíltúr með ritstjóra blaðsins Sigríði Dögg Auðunsdóttur og vakti athygli að Sigmundur Davíð svalaði þorstanum með Mountain Dew. „Ég sem hélt að bara unglingspiltar drykkju Mountain Dew,“ skrifaði Sigríður Dögg. Sjá einnig:Í ísbíltúr með Sigmundi Davíð5. september 2013 hitti Sigmundur Davíð forseta Bandaríkjanna, Barack Obama, ásamt leiðtogum Norðurlandanna í Stokkhólmi. Það vakti athygli að Sigmundur Davið var í spariskóm á hægri fæti en Nike-íþróttaskóm á þeim vinstri sökum bólgu vegna sýkingar í vinstri fæti. Sjá einnig:Í ósamstæðum skóm á fundi með Obama16. febrúar 2014 Fór Sigmundur Davíð í þátt Gísla Marteins Baldurssonar á RÚV.7. mars 2014 sótti Sigmundur leik íshokkíliðsins Edmonto Oilers í Kanada gegn New York Islanders og var sagður sannkallað lukkudýr Oilers sem hafði sigur í leiknum 3-2. ið Edmonton Oilers var 0-2 undir á heimavelli lengi framan af en í þriðja og síðasta leikhluta dró til tíðinda þegar Sigmundur Davíð og kona hans voru kynnt leikmönnum og áhorfendum á leiknum á stórum sjónvarpsskjáum á vellinum.Sjá einnig:Sigmundur Davíð lukkudýr íshokkíliðsins í Edmonton Þá hafa verið færðar fregnir af söfnunaráráttu Sigmundar Davíðs en 6. júní árið 2014 fundu starfsmenn Ríkisútvarpsins hluta þess efnis sem Sigmundur Davíð faldi í húsi Ríkisútvarpsins í Efstaleiti, þegar sjónvarpið flutti af Laugavegi. Árið áður hafði Ísland í dag fjallað um þessa söfnunaráráttu Sigmundar Davíðs og sagði meðal annars frá því að hann hefði afrekað að hita kjötbollur í kaffivél.Þá er eftirminnilegt viðtal Reykjavík síðdegis við Sigmund Davíð í Reykjavík síðdegis 14. ágúst í fyrra þar sem hann hann sagði neyslu á erlendu kjöti geta breytt hegðun heilu þjóða. „Ef menn borða til dæmis kjöt erlendis sem er ekki nógu vel eldað á fólk að hættu að innbyrða þessa sýkingu og hún getur leitt til breytingar á hegðunarmynstri. Þannig að menn hafa jafnvel velt upp þeirri spurningu og rannsakað hvort þetta kunni að breyta hegðun heilu þjóðanna“Fréttastofa Vísis óskar Sigmundi Davíð til hamingju með daginn.
Alþingi Mest lesið Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Erlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Grímuskylda á Landspítalanum Innlent Alvarlegt bílslys í Öræfum Innlent Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Innlent Strætó rann á bíl og ruslaskýli Innlent Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Erlent Fleiri fréttir Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Sjá meira