Erlent

Lögreglumenn særðir skotsárum í Ferguson

Vísir/AP
Tveir lögreglumenn voru í morgun skotnir fyrir utan lögreglustöðina í Ferguson í Missouri í Bandaríkjunum en mikill órói hefur verið í bænum frá því í sumar þegar unglingurinn Michael Thomas, sem var blökkumaður,  var skotinn til bana af hvítum lögreglumanni.

Í gær sagði lögreglustjóri bæjarins af sér í kjölfar skýrslu frá innanríkisráðuneyti Bandaríkjanna þar sem sagði að kynþáttamisnunun hefði verið stunduð innan lögreglunnar og í störfum hennar.

Til mótmæla kom í kjölfar afsagnarinnar og nú berast fregnir af því að tveir lögreglumenn hafi verið skotnir. Ekki er nánar vitað um ástand þeirra að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×