Innlent

Ólafur Ragnar í heimsókn í Litháen

Stefán Árni Pálsson skrifar
Forsetahjónin ásamt Dalia Grybauskaite, forseta Litháens.
Forsetahjónin ásamt Dalia Grybauskaite, forseta Litháens. mynd/forseti.is
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú hófu í morgun, opinbera heimsókn til Litháens í boði forseta landsins Dalia Grybauskaitė.

Á morgun mun forseti Íslands halda hátíðarræðu á afmælisfundi litháenska þingsins í tilefni þess að 25 ár eru liðin frá því að landið öðlaðist sjálfstæði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skrifstofu forseta Íslands.

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra og embættismenn utanríkisráðuneytis og forsetaskrifstofu taka einnig þátt í heimsókninni og forseti Alþingis Einar K. Guðfinnsson verður viðstaddur hátíðarfund þingsins.

Opinber heimsókn forsetahjónanna hófst með hátíðlegri athöfn við forsetahöllina í Vilnius þar sem forsetar landanna könnuðu heiðursvörð og þjóðsöngvar Íslands og Litháens voru leiknir. Að loknum viðræðufundi forsetanna og fundi íslensku sendinefndarinnar með forseta Litháens og embættismönnum héldu forsetarnir blaðamannafund.

Um hádegisbil leggur forseti blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða um þá sem létu lífið í baráttunni fyrir sjálfstæði Litháens. Að því loknu býður forsætisráðherra Algirdas Butkevičius forsetahjónunum og íslensku sendinefndinni til hádegisverðar.

Forseti mun svo síðdegis eiga fund með forseta litháenska þingsins Loreta Graužinienė og flytja fyrirlestur við Mykolas Romeris háskólann í Vilnius. Fyrirlesturinn fjallar um glímu lýðræðis og markaða í kjölfar hinnar evrópsku fjármálakreppu. Í kvöld býður forseti Litháens Dalia Grybauskaitė til hátíðarkvöldverðar í forsetahöllinni til heiðurs íslensku forsetahjónunum.

Á morgun, miðvikudaginn 11. mars, flytur forseti Íslands hátíðarræðu á sérstökum fundi þings Litháens sem haldinn er í tilefni þess að þá verða 25 ár liðin frá því landið endurheimti sjálfstæði sitt. Ræðumenn á hátíðarfundinum verða, auk forseta Íslands, forseti Litháens Dalia Grybauskaitė, forseti þingsins Loreta Graužinienė, erkibiskup Vilniusborgar Gintaras Grušas og Vytautas Landsbergis, helsti forystumaður í sjálfstæðisbaráttu landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×