Lífið

Robbi Chronic fékk viskýflösku að gjöf frá Beckham-hjónunum

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Hjónin og Robbi.
Hjónin og Robbi. vísir/getty/hari
Róbert Aron Magnússon, Robbi Chronic, deilir á Facebook mynd af viskýflösku sem hann fékk að gjöf frá Beckham-hjónunum David og Viktoríu.

Robbi virðist hafa fengið flöskuna að gjöf eftir að Tommi's Burger Joint í London tókst að gera afmæli Brooklyn, frumburðar hjónanna, ógleymanlegt en Róbert starfar þar.

Brooklyn deildi fyrr í mánuðinum mynd á Instagram þar sem hann stendur alsæll með skilti af staðnum.

Fólk á veraldarvefnum er alls ekki sammála um það hvort viský-ið sé gott eður ei. Einstaka eru hrifnir en flestir segja að þetta sé eins og versti skítur, líti út eins og rakspíri og bragðist eins. Einn sagðist fremur vilja logsjóða af sér geirvörturnar en drekka þennan óbjóð.


Tengdar fréttir

Þjálfari Charlton líkir Jóhanni Berg við Beckham

Guy Luzon, þjálfari Charlton Athletic er ánægður með íslenska landsliðsmanninn Jóhann Berg Guðmundsson sem var maðurinn á bak við öll þrjú mörk liðsins í 3-0 útisigri á Blackpool í ensku b-deildinni í gærkvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×