Lífið

Halda The Clash heiðurstónleika: „Gæti vel dottið í hug að endurgera umslagið“

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Hér má sjá miðann, plötuumslag London Calling að ógleymdum Jakobi Smára.
Hér má sjá miðann, plötuumslag London Calling að ógleymdum Jakobi Smára.
„Þeir komu og héldu tónleika á Listahátíð árið 1980 og ég fór á tónleikana,“ segir bassaleikarinn Jakob Smári Magnússon. „Einhverra hluta vegna álpaðist ég til að geyma miðann og hann kom upp úr kassa í bílskúrnum þegar ég var að taka þar til um daginn.“ Meðal annara hluta sem komu upp úr kassanum hafi verið gamlar dagbækur, póstkort og handskrifuð bók eftir Björk Guðmundsdóttur.

Jakob Smári er einn mesti The Clash aðdáandi landsins og hann fékk þá flugu í höfuðið að halda tónleika til heiðurs sveitinni. „Ég tók þátt í tónleikum sem Valgarður úr Fræbbblunum stóð fyrir og fékk þar að spila tvö eða þrjú The Clash lög. Það var svo skrambi gaman að mér datt í hug að hóa saman mannskap og telja í.“

„Þetta er eitt af þessum böndum sem maður hefur haldið upp á í gegnum tíðina og þeir munu náttúrulega aldrei koma saman aftur. Þannig einhver verður að halda merki þeirra hátt á lofti.“

Með Jakobi í hljómsveitinni eru Heiðar Örn (Botnleðja og Pollapönk) á gítar og söng, Baldur Ragnarsson (Skálmöld, Innvortis, Ljótu Hálfvitarnir) á gítar, Arnar Geir Ómarsson (HAM og Apparat Organ Quartet) á trommur. Sjálfur hefur Jakob Smári leikið með SSSól, Das Kapital og John Grant og þá eru aðeins fáir nefndir til sögunnar.

„Það er mjög gaman að Heiðar mun vera með signature Joe Strummer gítar sem Fender framleiddi. Ég veit ekki hvort ég kem til með að endurgera plötuumslag London Calling en það er möguleiki. Ég mæli með því að ljósmyndarar verði á tánum og reyni að grípa færið ef það gefst,“ segir Jakob.

Á tónleikunum verður boðið upp á bland í poka af ferli The Clash. Farið verið um víðan völl á plötum sveitarinnar. „Þetta verða þó rokkuðustu lögin. Við ætlum ekki að hafa neina kassagítara eða hljómborð.“

Tvennir tónleikar eru í farvatninu, á Gauknum 25. apríl og Græna hattinum 6. júní. Miðasala hófst í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×