Lífið

Láttu vaða að fara í loftið á Bravó

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Drengirnir í Láttu vaða.
Drengirnir í Láttu vaða.
„Þetta byrjaði allt í upphafi síðasta sumars,“ segir Pétur Andri Guðbergsson. Hann, Hjörleifur Steinn Þórisson og Sölvi Smárason eru drengirnir á bak við þættina Láttu vaða sem sýndir verða á Bravó.

„Fyrst vorum við með stutta sex mínútna þætti sem við sýndum á vefnum. Þar prófuðum við ýmsa hluti sem hægt er að gera hér í Reykjavík og nágrenni. Við fórum meðal annars í júdó, rafting og spiluðum rúgbí með Reykjavík Raiders.“

Á morgun fer í loftið ný sería af þáttum frá strákunum en þættirnir nú verða talsvert lengri, um hálftími að lengd, þó umfjöllunarefnið verði oft í áþekkum dúr. Fyrsti þátturinn verður sýndur kl. 22.00 á Bravó.

Drengirnir eru einnig á Facebook og halda úti Instagram og Snapchat aðgöngum undir notandanafninu lattuvada.

Þessir meistarar byrja með nýjan þátt á Bravó í apríl.Fylgstu vel með strax eftir páska.

Posted by Bravó on Monday, 30 March 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×