Lífið

Segir von á nýrri seríu af Arrested Development

Birgir Olgeirsson skrifar
Jason Bateman og Michael Cera í hlutverki feðganna Micheal og George-Michael Bluth.
Jason Bateman og Michael Cera í hlutverki feðganna Micheal og George-Michael Bluth.
Aðdáendur gamanþáttanna Arrested Development eiga von á góðu ef marka má orð framleiðanda þáttarins Brian Grazer sem hefur boðað fimmtu seríuna sem mun innihalda sautján þætti.

Þetta sagði hann í viðtali við fjölmiðlamanninn Bill Simmons en forsvarsmenn streymisveitunnar Netflix neituðu að tjá sig um þessa yfirlýsingu Grazer þegar CNN leitaði eftir staðfestingu.

Fjórða sería Arrested Development var sýnd hjá Netflix árið 2013 en fyrstu þrjár þáttaraðirnar voru sýndar á sjónvarpsstöðinni Fox sem hætti sýningu þeirra árið 2006.

Þættirnir hlutu jafnan lof gagnrýnenda en voru ekki með mikið áhorf. Þeir eiga sér engu að síður tryggan aðdáendahóp sem bíður jafnan spenntur eftir nýju efni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×