Lotus er „enn að komast á fæturna svona snemma á tímabilinu,“ samkvæmt Alan Permane, yfirverkfræðing liðsins.
Eftir erfitt ár í fyrra, þar sem Lotus endaði í áttunda sæti í keppni bílasmiða. Lotus hefur náð gríðarlegum framförum eftir að skipta úr Renault vél í Mercedes á milli ára.
Bæði Romain Grosjean og Pastor Maldonado náðu í þriðju lotu tímatökunnar í Ástralíu en hvorugum tókst að ljúka fyrsta hring.
Malasía var erfið líka, Maldonado sprengdi dekk snemma í keppninni og hætti svo með bremsuvírs bilun.
Grosjean snérist eftir snertingu frá Sergio Perez og endaði svo í 11. sæti.
„Við eigum von á talsverðum uppfærslum fyrir kínverska kappaksturinn, þar á meðal nýjan framvæng og nýja framtrjónu fyrir Barselóna,“ sagði Permane.
„Getan er klárlega til staðar, sérstaklega í keppninni, þar virðist hraðinn góður og bíllinn samkeppnishæfur,“ bætti Permane við.
Hann sagði svo að lokum „um leið og við fáum eðlilega keppni, þá verðum við í baráttu um góð stig.“
Permane: Lotus er enn að finna sig

Tengdar fréttir

Marko: Undirvagninn hluti af vandanum
Helmut Marko, ráðgjafi Red Bull viðurkennir undirvanginn á RB11 eigi jafn mikinn þátt í slökum árangri liðsins og vélin frá Renault.

Bílskúrinn: Mercedes-menn malaðir í Malasíu
Eftir keppnina í Malasíu er ljóst að Ferrari ætlar ekki að gefa Mercedes neitt eftir. Farið verður yfir helstu atburði helgarinnar hér í Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.

Sebastian Vettel fyrstur í mark í Malasíu
Sebastian Vettel á Ferrari vann í Malasíu. Lewis Hamilton varð annar á Mercedes og liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð þriðji.

Sjáðu allt það helsta frá Formúlu 1 í morgun
Sebastian Vettel á Ferrari vann Formúlu 1 keppnina sem fram fór í Malasíu í morgun, en Lewis Hamilton varð annar á Mercedes.