Lífið

Er þetta versti bolur Coachella hátíðarinnar í ár?

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Þessi bolur er alls ekki til fyrirmyndar.
Þessi bolur er alls ekki til fyrirmyndar. mynd/skjáskot
Coachella tónlistarhátíðin fer fram í Kaliforníu ríki um þessar mundir og hefur nú þegar komist í fréttirnar fyrir annað en tónlist eftir að Madonna neyddi Drake í sleik. Nú fer mynd af manni í afar óviðeigandi bol um vefinn eins og eldur um sinu.

Á bolinn er ritað „Eat, sleep, rape, repeat“ sem myndi útleggjast sem „Borðaðu, sofðu, nauðgaðu, endurtaktu“ á hinu ylhýra. Textinn er skrumskæling úr texta lags Fatboy Slim en það kallast „Eat, sleep, rave, repeat.“

Notendur samskiptamiðla hafa velt því fyrir sér hver maðurinn er og líklegt verður að teljast að hann muni sjá eftir því að hafa klætt sig í þennan bol.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×