Lífið

Madonna og Drake fóru óvænt í sleik

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Atvikið var að sjálfsögðu fest á filmu.
Atvikið var að sjálfsögðu fest á filmu. vísir/getty
Madonna og Drake komu fram á Coachella hátíðinni. Eftir að hafa lokið lagi sínu, Express Yourself, tók Madonna sig til og kyssti Drake rækilega. Madonna er 56 ára meðan kanadíski rapparinn er 28 ára. Viðbrögð kappans voru á þann veg að hann tók sér dágóða stund í að þurrka sér um munninn.

Myndband af atvikinu má sjá hér fyrir neðan.



Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Madonna sjokkerar fólk með kossi en á MTW verðlaununum árið 2003 kom hún fram ásamt Britney Spears og Christinu Aguilera. Þegar þær voru búnar að flytja lagið Like A Virgin kyssti Madonna þær báðar. Það atvik má rifja upp hér að neðan.




Tengdar fréttir

Tveir af helstu kyndilberum rappsins gefa út nýjar plötur

Big Sean og Drake gáfu báðir út plötur í mánuðinum. Drake er sagður standa í útistöðum við plötufyrirtækið sem hann er á samningi hjá og setti plötuna sína beint á netið, öllum að óvörum. Plata Big Sean kom út í vikunni og hefur fengið fína dóma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×